Félag fagfólks í frítímaþjónustu, FFF, er félag fagfólks sem starfar á vettvangi frítímans á vegum sveitarfélaga, s.s. í félagsmið-stöðvum, frístundaheimilum, frístundamiðstöðvum, ungmenna-húsum og skrifstofum æskulýðsmála en á þeim vettvangi starfa allt að þúsund manns víðsvegar um landið.
Flestir nýta sér frítímaþjónustu sveitarfélaganna með einum eða öðrum hætti á lífsleiðinni. Tilgangur með félaginu er að leggja áherslu á mikilvægi frítímaþjónustu og sérþekkingar á málaflokknum. Jafnframt er tilgangurinn að vera leiðandi í faglegri umræðu og stjórnvöldum til ráðgjafar um frítímaþjónustu. Félagið mun einnig verða mikilvægur samráðsvettvangur fyrir fagfólk í frítímaþjónustu.
Siðareglur FFF:
Tilgangur
Virðing fyrir manngildi og sérstöðu hvers einstaklings og trú á getu hans til að nýta hæfileika sína til fullnustu er grundvöllur starfsins.
Frumskyldur
1. Fagfólk í frítímaþjónustu rækir starf sitt án manngreinarálits, virðir siði, trúarbrögð, litarhátt og mannréttindi hverrar manneskju, kemur fram af heiðarleika, virðingu og leitast við að byggja upp gagnkvæmt traust.
2. Fagfólk í frítímaþjónustu gerir sér far um að virða og verja rétt hvers einstaklings til einkalífs og sjálfsákvörðunarréttar, svo fremi að það valdi öðrum ekki skaða. Geti viðkomandi ekki sjálfur gætt hagsmuna sinna, ber fagfólki að gæta þess að réttur hans sé ekki fyrir borð borinn.
3. Fagfólk í frítímaþjónustu gætir trúnaðar um þau mál sem það verður áskynja í starfi sínu. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera samkvæmt lagaboði eða af brýnni nauðsyn.
4. Fagfólk í frítímaþjónustu hefur trúnaðarskyldu við upplýsingaöflun, skráningu mála og meðferð gagna.
5. Fagfólk í frítímaþjónustu aflar ekki upplýsinga um einstakling án samþykkis hans, nema þar sem lagaskylda eða brýn nauðsyn býður að það sé gert. Þá skal einungis afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að vinna að málinu. Heimilt er að víkja frá trúnaðarskyldu ef einstaklingur fer skriflega fram á að ákveðin persóna eða stofnun fái upplýsingar.
6. Fagfólk í frítímaþjónustu notar ekki störf og fagþekkingu sína til að skaða, undiroka eða kúga einstakling, né notfærir sér á nokkurn hátt að hann á undir högg að sækja. Það notfærir sér ekki tengsl við einstaklinga sjálfu sér til persónulegs eða faglegs framdráttar.
7. Fagfólk í frítímaþjónustu stofnar ekki til eða á í kynferðislegu sambandi við barn eða ungling eða annan þann sem er því háður vegna starfs þess. Ábyrgðar- og hæfnisskyldur
8. Fagfólk í frítímaþjónustu ber ábyrgð á eigin hæfni og þeim störfum sem það innir af hendi í samræmi við það, sem starfsheiti felur í sér samkvæmt lögum.
9. Fagfólk í frítímaþjónustu stundar starf sitt með faglega heildarsýn að leiðarljósi og byggir á fræðilegum kenningum, niðurstöðum rannsókna og starfsreynslu á þverfaglegum grunni. Það viðheldur þekkingu sinni, endurnýjar hana og fylgist vel með nýjungum í starfi. Það uppfyllir þau skilyrði sem gerð eru til starfsins á hverjum tíma og miðlar þekkingu sinni sem víðast, til annarra félaga og alls almennings.
10. Fagfólk í frítímaþjónustu hlýðir samvisku sinni og sannfæringu. Það getur synjað að framkvæma verk sem það treystir sér ekki til að bera faglega ábyrgð á.
11. Fagfólk í frítímaþjónustu á frumkvæði að því að þróa nýjar hugmyndir í faginu og að hrinda þeim í framkvæmd. F.f. skal í ræðu og riti vera málefnalegt og nákvæmt. Það reynir að tryggja eins og mögulegt er, að það sem það lætur frá sér fara, bæði skriflega og munnlega, misskiljist ekki eða mistúlkist öðrum til miska.
12. Fagfólk í frítímaþjónustu sinnir ekki vinnu sinni undir áhrifum áfengis, lyfja eða annarra efna sem slæva dómgreind þess og athygli. Félagslegar skyldur
13. Fagfólk í frítímaþjónustu kynnir menntun sína og störf með tilhlýðilegum hætti, skýrir frá því þegar það kemur fram opinberlega hvort sem það er fyrir eigin hönd sem einstaklingur, sem fagmanneskja, fyrir hönd fagfélags síns eða þá stofnun sem hann starfar við.
14. Fagfólk í frítímaþjónustu er ávallt meðvitað um markmið þeirrar starfsemi sem það tekur þátt í og vinnur á grundvelli gildandi laga, reglna og fyrirmæla, stríði það ekki gegn siðareglum fagfélagsins.
15. Fagfólk í frítímaþjónustu vinnur að því að skapa traust almennings á faglegri frítímaþjónustu. Skyldur gagnvart starfssystkinum
16. Fagfólk í frítímaþjónustu gerir ekkert í starfi sem rýrir orðstír fagsins né faghópsins. Félagi sem veit um brot starfsfélaga síns gegn siðareglum félagsins bregst við með ábendingu, umræðu og stuðningi við hann, svo leiðrétta megi. Beri það ekki árangur skal málinu vísað til siðanefndar.
17. Fagfólk í frítímaþjónustu virðir hæfni, skyldur og ábyrgð annarra félaga og fagstétta ásamt því að treysta annarri fagþekkingu þegar það á við. Komi upp faglegur ágreiningur skal félagi reyna að miðla málum svo að niðurstaða fáist með hagsmuni viðkomandi einstaklinga að leiðarljósi. „Siðarreglur faghópsins eru lýsing á skyldum hópsins. Helsti tilgangur þeirra er að skilgreina hlutverk fagmannsins í samfélaginu og skyldur hans við þá sem njóta þjónustu hans. Þær auðvelda honum að gegna störfum sínum allt frá upphafi starfsferils og að gera sér grein fyrir þeim siðferðislegu kröfum sem gera má til hans. Siðareglur ættu að auka virðingu stéttar út á við og efla sjálfsvirðingu hennar. Siðargeglur þurfa að vera í sífelldri endurskoðun í samræmi við faglegar og samfélagslegar breytingar, “ Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræða. 2005, 28.mars, Af heimasíðu félagsins. Siðareglur Félags fagfólks um frítímaþjónutsu voru unnar með hliðsjón af lestri bókarinnar: Siðareglur, greining á siðareglum ásamt skráðum siðareglum starfsgreina á Íslandi. Höfundur Sigurður Kristinsson, Háskóli Íslands. Háskólaútgáfan. Rannsóknarstofnun í siðfræði. 1991.
