Fréttir

Starfsdagar Samfes

Starfsdagar Samfés fara fram í Munaðarnesi dagana 16. og 17. september næstkomandi – ætlum við að vera á jákvæðu og uppbyggilegu nótunum og höfum fengið frábært fólk til að sjá um fræðslu og fyrirlestra (hægt að sjá drög af dagskránni hér fyrir neðan).

 

Nánar

 

Söngkeppni Samfés - breytingar

Eins mörgum er kunnugt hafa líflegar umræður staðið yfir í nokkur ár um það hvernig reikna skuli út sætafjölda hvers landshluta í lokakeppni Söngkeppni Samfés. Hingað til hefur verið reiknað út frá fjölda félagsmiðstöðva í landshlutanum. Rökin fyrir því að reikna þetta út frá fjölda félagsmiðstöðva eru þau að allar félagsmiðstöðvar greiða sama gjald án tillits til stærðar, fjölda unglinga eða staðsetningar. Svo allir hafa sama möguleikann.

Nánar

   

Stíll 2010 - Þema og fleira

Stíll er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun.

 Stíll 2010, mun verða tíunda keppni af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi.  

Í ár verður Stíll haldinn laugardaginn 20. nóvember frá kl. 12.00 -17.00 og fer kepnin fram í Vetrargarði Smáralindar.

Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel.   

 

Nánar

   

Samfés styrkir smiðjuhelgar

Á viðburðadagatali Samfés hafa alltaf verið teknar frá tvær helgar á hverju starfsári undir svokallaðar smiðjuhelgar, ein fyrir áramót og svo önnur á vorönninni.

Hingað til hefur Samfés lítið sem ekkert komið nálægt þessum smiðjuhelgum fyrir utan að koma skilaboðum áleiðis.

Núna langar okkur að gera smá tilraun og  reyna að gera smiðjuhelgarnar aðeins meira að Samfés viðburði og í leiðinni efla möguleika sem flestra unglinga til að taka þátt í smiðjuhelgunum. Oft eru þessar smiðjur eina tækifæri margra unglinga að fá að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt!

...og þess vegna langar Samfés að veita einn styrk fyrir áramót að upphæð 50.000 kr. sem á að fara í smiðjuhelgi.

Nánar

   

Dagskrá starfsársins 2010 - 2011

Eftirfarandi eru dagsetningar á viðburðum vetrarins:

Starfsdagar Samfés                            fim. 16. sept – fös 17. sept

Landsmót Samfés í Garðabæ            fös. 1. okt – sun 3. okt

Landsþing ungs fólks í Garðabæ       sun. 3. okt

Smiðjuhelgi 1 (umsóknir óskast)        haustönn                       

Rímnaflæði í Miðbergi                         fös. 19. nóv

Stíll í Vetrargarði Smáralindar            lau. 20. nóv

25 ára afmæli Samfés                         9. des

Smiðjuhelgi 2 (umsóknir óskast)        vorönn

Samféshátíð í Laugardalshöllinni      fös. 4. mars – lau. 5. mars

Aðalfundur Samfés                               fim. 14. apríl – fös. 15. apríl        

 

NÝTT! – á hugmyndastigi

Uppskeruhátíð félagsmiðstöðva          lau. 21. maí

 
   

Framkvæmdastýran komin á ról eftir sumarfrí

Heil og sæl öll sömul

Ég vona að þið allir hafi haft það gott í sumar og séu komnir (eða eru á leið) til vinnu endurnærðir og glaðir. Ég kom til vinnu í gær og er svona að reyna að átta mig á hvar best sé að byrja til að koma vetrinum í gang.

Eins og þið vonandi hafið tekið eftir þá er heimasíðan loks komin í betri búning og á vonandi eftir að batna. Hún er ekki alveg

Nánar

   

Samfés á Facebook

facebook_logo

Skoðanakönnun

Ferðu á landsmót