Samfés styrkir smiðjuhelgar

Á viðburðadagatali Samfés hafa alltaf verið teknar frá tvær helgar á hverju starfsári undir svokallaðar smiðjuhelgar, ein fyrir áramót og svo önnur á vorönninni.

Hingað til hefur Samfés lítið sem ekkert komið nálægt þessum smiðjuhelgum fyrir utan að koma skilaboðum áleiðis.

Núna langar okkur að gera smá tilraun og  reyna að gera smiðjuhelgarnar aðeins meira að Samfés viðburði og í leiðinni efla möguleika sem flestra unglinga til að taka þátt í smiðjuhelgunum. Oft eru þessar smiðjur eina tækifæri margra unglinga að fá að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt!

...og þess vegna langar Samfés að veita einn styrk fyrir áramót að upphæð 50.000 kr. sem á að fara í smiðjuhelgi.

Samfés auglýsir hér með eftir áhugasömum félögum til þess að halda smiðjuhelgi fyrir áramót.

Umsóknarfrestur er til 9. september 2010.

Stjórn Samfés setur engin skilyrði um hvers konar smiðjur um ræðir, við treystum ykkur sem vinna á þessum vettvangi til að vita hvað er viðeigandi og unglingum þykir skemmtilegt að fá að gera.

Skilyrði Samfés til styrkþega eru eftirfarandi:

  •  
    • Styrkþegar þurfa að vera meðlimir í Samfés. Smiðjuhelgin má vera samstarfsverkefni 2ja eða fleiri aðildarfélaga.
    • Sækja þarf um á meðfylgjandi umsóknarform ( Umskn_um_styrk.doc )  þar sem þarf að koma fram:

Hverjir standa að smiðjuhelginni (ábyrgðaraðilar, félagsmiðstöð og starfsmaður)

Lýsing á smiðju og tilgangur

Lýsing á aðstöðu og fjöldi starfsmanna

Drög að dagskrá

Fjárhagsáætlun

Skýrsla eftir smiðju (sem gildir sem einhvers konar viðurkenning á því að smiðja hafi farið fram og þá er styrkur greiddur út)

  • Smiðjuhelgin verður að vera opin öllum áhugasömum unglingum sem sækja um á meðan pláss leyfir, frá hvaða félagsmiðstöð sem er, svo fremi sem félagsmiðstöðin er aðili að Samfés. Ekki má taka frá ákveðin mörg pláss í smiðjuhelginni fyrir heimakrakka. Allir eiga að hafa jöfn tækifæri.
  • Þátttökugjald má ekki vera hærra en 5.000 pr. ungling fyrir alla helgina (matur og gisting innifalið).
  • Smiðjuhelgi má ekki skarast á við annan skipulagðan Samfés viðburð  (s.s. Rímnaflæði, Stíl, Söngkeppni osfrv.).
  • Samfés mun aðstoða smiðjuhaldara eftir bestu getu við að miðla upplýsingum ofl.
  •