Stíll 2010 - Þema og fleira

Stíll er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun.

 Stíll 2010, mun verða tíunda keppni af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi.  

Í ár verður Stíll haldinn laugardaginn 20. nóvember frá kl. 12.00 -17.00 og fer kepnin fram í Vetrargarði Smáralindar.

Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel.   

 

KEPPNIN Í ÁR

Sem fyrr er unnið út frá ákveðnu þema og er þema keppninnar í ár.

 

TILFINNINGAR

 

Þemað er afar opið og gefur tækifæri til að láta hugmyndaflugið njóta sín.

 

Mjög mikilvegt er að gera góða lýsingu af heildarferli hönnunarinnar og skrá það niður í þar til gerða möppu sem dómarar nota við mat sitt.  Möppunni þarf að skila til Samfés, samfés samataka félagsmiðstöðva á Íslandi, Gerðubergi 1, 111 Reykjavík  fyrir mánudaginn 15. okt kl. 16.00.

Það sem þarf að koma fram í möppu:

  • Skrá niður eða gera teikningar með útskýringum af þróun ferlisins.
  • Hugmyndina á bak við flíkina, hárið og förðunina.
  • Hvernig hönnunin tengist þemanu.
  • Hvaða efni er verið að nota.
  • Hvaða kostnaður féll til (kvittanir þurfa að fylgja).

Vinsmalegast athugið að mappan má ekki vera merkt á einn né annan hátt. Hvorki með nafni keppenda né nafni félagsmiðstöðvar. Þegar mappan er afhent verður hún merkt með númeri sem er hið sama og iðið fær úthlutað á keppnisdeginum.

Leiðbeinendur eða umsjónaaðilar hópsins eru vinsamlegast beðnir um að stilla efniskostnaði í hóf, gott er að miða við að heildarkostnaður fari ekki yfir 15.000 kr.

Einnig skal gæta þess að módelin séu klædd innan almennra siðferðismarka

 SKRÁNING

Skráningarfrestur er til þriðjudagsins  2. nóvember kl. 16:00.

Þar af leiðandi þurfa undankeppnir í félagsmiðstöðvunum að vera búnar fyrir þann tíma (gott er að miða við mánaðarmót okt/nóv).

Skráningu skal skila á þar til gerður skráningarformi (Umsóknarform Stíll ) og skila á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Til að skráning teljist gild þarf að greiða þátttökugjald.

Þátttökugjald er 5.000 kr. á lið og skal greitt við skráningu. Greiða skal þátttökugjald á reikning 301-26-988, kt. 650686-1799 og senda kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  Taka skal fram í skýringu hvaða félagsmiðstöð greiðir.

Sérstakt eyðublað skal fylla út (sjá hér:Efnislýsingarform Stíll )   og skila þar sem tilgreint er hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengnir og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal það tekið fram hvar/hver lánaði eða gaf hlutinn. Til að kynnir geti gert góða grein fyrir hverri flík / hönnun á sviði, óskum við að fá efnislýsingu og hugmyndir á bakvið flíkina eigi síðar en viku fyrir keppni.  Eiga það bara að vera 2 til 4 línur (10 punktaTimes New roman letur).

Kl. 12:00          Liðin mæta til undirbúning í Vetrargarðinn í Smáralind 20. nóv.  

Kl. 13:00          Keppnin hefst

Kl. 15:00          Keppni lýkur

Kl. 15:20          Sýning á afrakstri keppenda

Kl. 16.00          Dómnefnd dregur sig í hlé

Kl. 16:30          Úrslit kynnt.

Kl: 17:00          Dagskrá lýkur

 

Á meðan liðin gera sig klár verða ýmis skemmtiatriði á sviði, m.a. tískusýningar, tónlistaratriði og dansatriði frá unglingum.

 

Reglur

 

1.   Að klæðnaður sé innan siðferðilegra marka. Miðað skal við að a.m.k. 1/3 hluti líkamans skuli vera hulinn flík.

2.   Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið, skipað 2 til 4 einstaklingum (þar með talið módelið) úr 8.-10. bekk í grunnskóla.

3.   Öll vinna keppenda við módel verður að fara fram á svæðinu, ekki er heimilt að undirbúa módelið á neinn hátt áður en að keppnin hefst.

4.   Á keppnisstað verða þátttakendur að standa sjálfir skil á sinni hönnun/sköpun og utanaðkomandi aðstoð er bönnuð (svo sem starfsmenn, foreldrar eða aðrir).

5.   Teikningar og útskýringar verða að afhendast umsjónarmönnum keppninnar áður en keppni hefst (við komu liðs í Íþróttahús Smárans).

6.   Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðva athugi og fylgist með efniskostnaði keppnisliða og reyni að stýra því að hann sé innan skynsamlegra marka. Ágætt er að miða við að heildarkostnaður fari ekki upp fyrir 15.000 krónur á hóp.

7. Í byrjun nóvember verða send til ykkar eyðublöð sem ætluð eru til að skrifa niður hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengin og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja blaðinu. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal tekið fram hvar/hver hafi gefið/lánað efnið eða hlutinn.