Eins mörgum er kunnugt hafa líflegar umræður staðið yfir í nokkur ár um það hvernig reikna skuli út sætafjölda hvers landshluta í lokakeppni Söngkeppni Samfés. Hingað til hefur verið reiknað út frá fjölda félagsmiðstöðva í landshlutanum. Rökin fyrir því að reikna þetta út frá fjölda félagsmiðstöðva eru þau að allar félagsmiðstöðvar greiða sama gjald án tillits til stærðar, fjölda unglinga eða staðsetningar. Svo allir hafa sama möguleikann.
Þeim sem hafa fundið þessu kerfi allt til foráttu hafa bent á að fjöldi unglinga sem tilheyra hverri félagmiðstöð sé misjafnt sem þýðir að möguleikarnir á því að komast áfram í lokakeppni minnki eftir því sem fjöldinn er meiri. Þannig að það hafa ekki allir sama möguleikann.
Svona hefur umræðan verið að lullast undanfarin ár og engu hefur verið breytt eða skýr afstaða tekin. En síðastliðinn vetur var sett á stofn nefnd, með Andra Ómarsson verkefnisstjóra í Bústöðum í forsvari, sem hafði þann tilgang að fara ofan í saumana á fyrirkomulagi sönkeppninnar. Hann fékk til liðs við sig fulltrúa úr öllum landshlutum sem skipust á skoðunum um málið. Svo var það á síðasta Aðalfundi Samfés sem niðurstöður nefndarinnar voru kynntar og ýmsar tillögur voru bornar á borð. Það varð svo til þess að engin endanleg niðurstaða fékkst en í staðinn var ákveðið að vísa málinu til ungmennaráðs Samfés.
Ungmennaráð Samfés var kallað saman til aukafundar 28. maí sl. þar sem málið var skoðað frá öllum hliðum og talsmenn hinna ýmsu skoðana mættu í heimsókn. Skemmst er frá því að segja að ungmennaráð tæklaði málið á 2 tímum komst að afar diplómatískri niðurstöðu:
Taka á tillit til hvort tveggja fjölda félagsmiðstöðva og fjölda unglinga að baki hverri félagsmiðstöð, þ.e.a.s. fundið yrði meðaltal úr niðurstöðum reiknireglnanna beggja.
Að auki mæltist ungmennaráð til að fallið yrði frá þeirri hefð að sigurvegari síðasta árs fái sjálfkrafa sæti í lokakeppnni. Þ.a.l. verða þetta 30 sæti sem skiptast niður á landshlutanna en ekki 29 eins og verið hefur.
Í framhaldi af ákvörðun aðalfundar var tekið fram að tillaga ungmennaráðs hver sem hún myndi verða yrði háð samþykki stjórnar Samfés. Var það svo á á stjórnarfundi 23. ágúst sl. sem stjórn Samfés samþykkti tillöguna með öllum atkvæðum án athugasemda. Er það skoðun stjórnarmanna að Samfés eigi að vera í farabroddi með að „praktisera“unglingalýðræði og var þetta skref í þá átt.
Þetta þýðir að Reykjavík og Suðurland (gamla skiptingin) bæta við sig sætum en Hafnarfjörður, Austurland og Vesturland missa eitt sæti. Aðrir staðir halda sínum sætum óbreyttum.
Varðandi Suðurland
Suðurland bætir við sig sæti.
Í vor henti ég inn í Suðurlandshópinn tillögu um að skipta niður riðlinum. Allir tóku vel í það og verður skiptingin hér eftir eftirfarandi:
- Suðurland (frá Þorlákshöfn að Höfn) – Alls 3 sæti
- Reykjanes ásamt Garðabæ, Álftanesi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi – Alls 4 sæti.
Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að hafa Kragakeppni (2 sæti) og svo Reykjanes (2 sæti) en ég læt ykkur um að ákveða það.
Varðandi Vesturland
Vesturland missir eitt sæti, fer úr 4 sætum í 3. Þar sem haldnar hafa verið tvær keppnir á Vesturlandi, þ.e. Vesturland og Vestfirðir, þá er það tillaga Samfés að það komi í hlut Vestfjarða að missa sitt sæti miðað við útreikningin (sjá hér fyrir neðan). Ykkur er að sjálfsögu frjálst að gera þetta einhvern veginn öðruvísi. Eins og að skiptast á aukasætinu (3ja sætinu).
Varðandi Reykjavík
Reykjavík bætir við sig tveimur sætum (fær alls 8 skv nýrri skiptingu) og munu þessu auka tvö sæti falla í skaut Gufunesbæjar og Kringlumýrar.
Varðandi Hafnarfjörð
Missir eitt sæti fer úr þremurí tvö. Undanfarin ár hefur Hafnarfjörður í raun verið á mörkunum um að ná að halda 3ja sætinu og oft þurft að reiða sig á Álftanes til að hífa stuðulinn upp.
Varðandi Austurland
Þar tapast eitt sæti, fer úr þremur sætum í tvö. Helsta ástæða er lítill fjöldi unglinga á bak við hverja félgasmiðstöð.
Norðurland heldur sínum 5 sætum og Kópavogur heldur sínum 3 sætum.
Hér má sjá útreikninga fyrir hvern landshluta/stað. Við fjöldatölur notaðist ég við hagtölur Hagstofunnar frá því um áramótin síðustu.
|
Staður |
Unglingar tótal |
Félagsmiðst tótal |
Fjöldi í lokakeppni m.v. fj. ungl. |
Fjöldi í lokakeppni m.v fjöldi fél.mst |
Nýr stuðull meðaltal |
|
|
Reykjavík |
4.389 |
24 |
9,7 |
6,9 |
8,3 |
|
|
Kópavogur |
1.225 |
9 |
2,7 |
2,6 |
2,7 |
|
|
Hafnarfjörður |
1.174 |
7 |
2,6 |
2,0 |
2,3 |
|
|
Garðabær |
486 |
1 |
1,1 |
0,3 |
0,7 |
|
|
Álftanes |
145 |
1 |
0,3 |
0,3 |
0,3 |
|
|
Mosfellsbær |
424 |
1 |
0,9 |
0,3 |
0,6 |
|
|
Seltjarnarnes |
234 |
1 |
0,5 |
0,3 |
0,4 |
|
|
Reykjanes |
1.027 |
5 |
2,3 |
1,4 |
1,9 |
|
|
Suðurland |
1.165 |
9 |
2,6 |
2,6 |
2,6 |
|
|
Vesturland |
694 |
9 |
1,5 |
2,6 |
2,1 |
|
|
Vestfirðir |
366 |
6 |
0,8 |
1,7 |
1,3 |
|
|
Norðurland |
1.658 |
19 |
3,7 |
5,5 |
4,6 |
|
|
Austurland |
564 |
12 |
1,2 |
3,5 |
2,4 |
|
|
Alls: |
13551 |
104 |
30,0 |
30,0 |
30,0 |
|
|
Stuðull |
0,0022 |
0,2885 |
