Starfsdagar Samfes

Starfsdagar Samfés fara fram í Munaðarnesi dagana 16. og 17. september næstkomandi – ætlum við að vera á jákvæðu og uppbyggilegu nótunum og höfum fengið frábært fólk til að sjá um fræðslu og fyrirlestra (hægt að sjá drög af dagskránni hér fyrir neðan).

 

Gert er ráð fyrir að herlegheitin hefjist fimmtudaginn 16. september stundvíslega kl. 09.00 og standi fram til kl. 16.00 föstudaginn 17.sept

 

Verð pr. mann er 10.000 kr. og er allt innifalið í því verði, gisting 1 nótt, fæði og fyrirlesarar:

  • Gisting
  1. Gist verður í 8 manna sumarbústöðum,
  • Allir bústaðirnir er vel búnir m.a. með heitum pottum svo mælst er til að taka með sér sundföt ef einhver vill dýfa sér eftir langan og strangan dag.
  • Sængur og koddar er til staðar í öllum bústöðum en nauðsynlegt er að taka með sér sængur- og koddaver.
  • Fæði
  1. Hádegismatur báða dagana
  2. Kvöldverður fimmtudagskvöld
  3. Morgunmatur föstudagsmorgun
  4. Kaffi og síðdegishressing báða dagana

 

Vinsamlegast skráið ykkur á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir kl. 16.00 mánudaginn 13. september 2010.

 

Eftirfarandi er drög af dagskrá – það eru nokkrir lausir endar og tímasetningar geta eitthvað breyst á einstaka fyrirlestri – ég mun svo senda ykkur endanlega dagskrá þegar hún liggur fyrir. En allavega;

 

Fimmtudagur 16 september

Kl. 9:00-09:30     Skráning og kaffi

Kl. 09:30-10:15   „Spillum æskunni“: Jóhann Björnsson heimspekingur (Siðmennt)

Kl. 10:15-10:30   Kaffi

Kl. 10:30-11:30   „Hamingjufræði“: Hrefna Guðmundsdóttir, M.A. verkefnastjóri Kampi

11:30 – 12:00     Erlendur Kristjánsson deildarstjóri í Menntamálaráðuneytinu.

Kl. 12:00 -13:00  Hádegismatur

Kl: 13:00-14:00   „Gildi og leiðarljós í starfi í félagsmiðstöðum“:  Eygló Rúnarsdóttir ÍTR;.

14:00-15:00        „Ungt fólk og skapandi hugsun“: Goddur (Guðmundur Oddur Magnússon) prófessor í  Listaháskóla Íslands

Kl. 15:00-15:15 Kaffihlé

Kl. 15:15-16:00   „Óstaðfestur fyrirlestur um ungmenni“.

Kl. 16:00 – 17.00 Kompás

Kl. 17.00 – 17:15 Erlent samstarf og ECYC: Bjarni Þórðarson           

Kl. 17:00 Fundi frestað

 

Fimmtudagur 17. september

Kl.  09:00-10:00 „Skapandi starf í félagsmiðstöð“.

Kl. 10:00-10:15  Kaffi

Kl. 10:15-12:00 Smiðja 1

Þrykk eða stenslagerð

Ör ECYC námskeið (erlend samskipti) - Bjarni Þórðarson og Sigurlaug Vordís

                Leiklist

Kl. 12:00-13:00 Hádegishlé

Kl. 13:00-14:00 „Jákvæð upplifun og hópamyndun“ 

Kl. 14:00-14:15 Kaffihlé

kl. 14:15-16:00 Smiðja 2

  1. Hópefli – Magnús Guðmundsson
  2. Fímóleir
  3. Útieldun

Kl. 16:00 Starfsdögum lýkur