Nú er annasamri helgi lokið og er ég og aðrir aðstandendur Samfés ákaflega stolt og ánægð með afraksturinn.
Rímnaflæði var haldiði í félagsmiðstöðinni Sigyn í Rimaskóla sl föstudagskvöld. Mættu þangað vel rúmlega 500 unglingar til að fylgjast með og taka þátt, en rétt tæplega 600 manns (unglingar og starfsfólk) voru í húsinu sem er metþátttaka. Gekk allt ákaflega vel og voru engar heimsóknir í brosherbergi eða neitt slíkt. Tólf lið voru skráð í keppnina og stóðu þau sig öll frábærlega. En að lokum var það hann Óli 107 úr félagsmiðstöðinni Frosta sem stóð uppi sem sigurvegari. Tvisturinn frá Hvolsvelli og Eden frá Grundarfirði vermdu svo annað og þriðja sætið.
Langar mig til að þakka starfsfólki Sigyn og Rimaskóla fyrir að hýsa keppnina með svo skömmum fyrirvara.
http://ruv.is/sarpurinn/frettir/19112011-5 (farið á mínútu 15,38)
Stíll var haldinn í Veislusalnum við Skógarhlíð á laugardaginn, þangað mættu 55 lið til keppni eða um 220 unglingar. Gekk keppnin ákaflega vel fyrir sig þrátt fyrir að vera á nýjum stað. Að vanda var keppnin hin glæsiegasta og krakkarnir, allir sem einn, alveg ótrúlegir. Var það félagsmiðstöðin Zero á Flúðum sem bar sigur úr bítum þetta árið. En Ekkó í Kópavogi var í öðru Pegaus líka úr Kópavogi í því þriðja. Hólmsel í Reykjavik var fjórða sæti og svo Þrykkjan frá Höfn í því fimmta. Bakkinn í Reykjavík þótti með besta hárið. Hundrað&ellefu úr Reykjavík fékk verðlaun fyrir förðun og svo Klaustrið í Kirkjubæjarklaustri fékk verðlaun fyrir bestu hönnun að lokum var það svo Þruman úr Grindavik sem fékk verðlaun fyrir bestu möppuna.
Sýndu fjölmiðla keppninni mikinn áhuga http://mbl.is/frettir/innlent/2011/11/20/zero_sigradi_i_stil_2011/
Óska ég öllum innilega til hamingju
