SamFestingurinn - lokakafli

Mikilvægar upplýsingar/tilmæli fyrir SamFestinginn í Laugardalshöllinni 2.-3. mars 2012.

Þessi póstur er svaka langur en það er nauðsynlegt að lesa hann allan. Vegna þess að ekki eru allir starfsmenn á póstlistanum þá vil ég biðja ykkur sem eru í forsvari til að prenta út þennan póst og sjá til þess að að allir starfsmenn sem fylgja krökkunum lesi og séu meðvitaðir um reglurnar.

Til upprifjunar

  • Nú þegar hafa allir miðar verið seldir og ekki er til meira af miðum.
  • Sem fyrr er reglan að enginn kemur á eigin vegum í Laugardalshöll. Hver og ein félagsmiðstöð á að koma með rútu, allir saman, bæði starfsfólk og unglingar.
  • Sem fyrr er reglan 1 starfsmaður í fylgd með að hámarki 15 unglingum.
  • Hver og einn starfsmaður hefur hlutverki að gegna og á að hafa fengið upplýsingar nú þegar á hvaða svæði hann þarf að vakta. Póststjórar eru í því að hafa samband við sitt fólk og niðurnjörva enn frekar verkaskiptingu. Allir póststjórar eru hin mestu gæðablóð svo takið símtalinu vel og gerið það sem ætlast er til af ykkur.

Reglur um klæðaburð

Ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum, þá setti stjórn Samfés í samráði við Ungmennaráð Samfés reglur um klæðaburð fyrir SamFestinginn í fyrra og munu gilda þær líka í ár. Reglurnar eru eftirfarandi:

    • Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
    • Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum (hlýrabolir eru í lagi). Ath mikið hefur verið spurt um gegnsæjar skyrtur og blúnduskyrtur. Ef planið er að klæðast þeim skal vera í heilum hlýrabol undir – ekki er í lagi að vera bara í brjóstahaldara undir.
    • Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
    • Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum, þetta er langt ball þar sem fá tækifæri gefast til að setjast og hvíla sig – margar stúlkur sem hafa ákveðið að vera í háum hælum eru oftar en ekki komnar úr þeim á leiðinni í Höllina. Tíðustu slysin er af völdum hárra hæla, hælsæra og þegar búið er að stíga á berar tær.

Ath allir skulu virða þessar reglur, gestir, meðimir hljómsveita og keppendur í söngkeppni.

Mælst er til þess að taka á brotum á þessum reglum áður en lagt er af stað. Þ.e. krakkarnir fá ekki að fara af stað fyrr en klæðaburður er orðinn ásættanlegur. Mun auðveldara og skilvirkara er að hringja heim eftir öðrum fatnaði úr félagsmiðstöðinni heldur en úr Laugardalshöllinni.

Nauðsynlegt er að ítreka við krakkana ef um brot á þessum reglum á sér stað í Laugardalshöllinni er farið með viðkomandi ungling afsíðis þar sem leitað verður leiða til að bæta úr klæðnaðinum eða í versta falli verður unglingurinn að sitja af sér tónleikana, sem er auðvitað svaka fúlt. Reyndar hefur undirrituð engar stórvægilegar áhyggjur af þessu því í fyrra voru allir krakkarnir alveg ótrúlega fín og falleg og sér og sínum til sóma!

 

  • Ekki er fatahengi í höllinni svo segið krökkunum að geyma yfirhafnir í rútum.
  • Ábending til krakkana:

Vinsamlegast ítrekið við krakkana að vera búin að borða vel áður en lagt er af stað – þetta er langt ball og margt fólk, mikill hiti og troðningur á köflum. Helstu óhöppin hafa verið vegna vannæringar og ofþornunar og getur skapast mikil hætta ef einstaklingur líður út af vegna svengdar og þorsta.

Það verða pizzur til sölu á staðnum en samt biðja alla að ver búna að borða!!!

 

Dagskráin er eftirfarandi

Föstudagur

Kl. 18.00 Húsið opnar

Unglinga DJ sér um að stytta krökkunum stundir.

Kl. 18.50 Tónleikar hefjast

18:50 Aragrúi frá Selfossi

19:15 Jón Jónsson

20:00 Justin Case úr Grafarvogi

20:20 Emmsjé Gauti

21:00 No Way úr Búðardal

21:18 Óvænt atriði

21:20 DJ Sindri BM

22:00 White Signal

22:20 Páll Óskar

Kl. 23.00 Tónleikum lýkur

Laugardagur

Kl. 12.00 Húsið opnar

Kl. 12.30 Salur opnar

Kl. 13.00 Keppni hefst

Kl. 16.00 Keppni lýkur

Armböndin

  • Armböndin hafa verið afhent öllum. Ef ykkar armbönd hafa ekki borist vinsamlegast hafið samband fyrr en seinna
  • Öll armbönd eru númeruð svo auðvelt er að rekja hvaða félagsmiðstöð hver og einn tilheyrir.
  • Það er mjög mikilvægt að unglingarnir fái ekki armböndin fyrr en á leið á SamFestinginn. Starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar skal setja það á og passi vel upp á að armbandið sé ekki of þröngt, ekki of vítt og smellan sé alveg föst.
  • Það er einnig mjög mikilvægt að unglingarnir séu komnir með armböndin á hendina áður en rútan stoppar við Laugardalshöllina, þannig að ekki verði miklar tafir á rútuumferð sem verður mikil á svæðinu.

Starfmannabolirnir

  • Höfuðborgarsvæðið á að hafa fengið sína boli, svo allir skulu vera klæddir þeim þegar þau koma í Laugardalshöll. Þetta á við hvort tveggja föstudag og laugardag.
  • Varðandi starfsmenn af landsbyggðinni vinsamlegast gefið ykkur fram við fólk í anddyri þar sem bolirnir eru til afhendingar.

Rútutímar:

  • Tímasetningar á því hvenær við viljum fá rúturnar að Laugardalshöllinni frá hverjum landshluta er í meðfylgjandi skjali og hér fyrir neðan. Vinsamlegast reynið ykkar besta að virða þessi tímamörk.

Ath. Þegar þið rennið upp að höllinni þá VERÐUR AÐ BÍÐA EFTIR MERKI STARFSMANNS Á PLANI HVENÆR MÁ OPNA HVERJA RÚTU. STARFSMAÐUR FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR MÁ KOMA ÚT OG BOÐA KOMA SÍNA EN ÞAÐ MÁ ALLS EKKI HLEYPA UNGLINGUNUM ÚT FYRR EN LEYFI FYRIR ÞVÍ HEFUR FENGIST. ÞETTA HEFUR ALLTAF VERIÐ SVONA OG MUN ALLTAF VERA SVONA EN EINHVERRA HLUTA VEGNA EIGA SUMIR AFAR ERFITT MEÐ AÐ MUNA ÞETTA. EKKI HLEYPA ÚT FYRR EN LEYFI FÆST!  ÞAÐ VERÐA ALLIR STARFSMENN AÐ VERA MEÐVITAÐIR UM ÞESSA REGLU! EKKI HLEYPA ÚT FYRR EN LEYFI FÆST!

 

  • En allavega svona á rólegu nótunum, eftirfarandi eru þeir tímar hvenær hver og einn landshluti á að vera kominn við Laugardalshöll.

Reykjavík  – 18:00

Kópavogur – 18:10

Austurland  – 18:10

Vesturland og Vestfirðir – 18:20

Seltjarnarnes, Mosó, Garðabær, Álftanes 18:20

Reykjanes  – 18:30

Hafnarfjörður  – 18:30

Suðurland  – 18:30

Norðurland  – 18:30

 

Gæslumál

  • Höllin opnar kl 18:00 af því gefnu að okkur hafi tekist að manna að hluta alla pósta – svo endilega sendið ca helming allra starfsmanna á undan rútum til að taka sér stöðu á pósti til að hægt sé að hleypa inn um leið og rútur birtast – ca. 17.30 væri vel þegið.
  • Starfsmenn þurfa að vera með starfsmanna-armböndin á hendinni þegar þeir koma, fara svo inn í Höllina og ná sér í starfsmannabol.
  • Starfsmenn eru hvattir til að ganga beint á sín gæslusvæði og gefa sig fram við sinn póststjóra um leið og þeir eru búnir að ná sér í bol. Upplýsingar um gæslusvæðin eiga að hafa borist öllum. Póststjórar eru verða mjög áberandi í gulu vesti með endurskinsmerkjum og bláa möppu í hendi.
  • Brosherbergi skal leysa allan ágreining. Þ.e. ef vafamál skapast vegna klæðaburðar unglings eða hegðunar skal skal fara undantekningalaust með unglinginn í Brosherbergi og þar verða málin leyst af starfsmönnum þess. Starfsmenn skulu ekki reyna að leysa ágreining á gólfi sama hve lítilvæg þau kunna að vera.
  • Gott er að allir starfsmenn séu búnir að borða þegar komið er í Laugardalshöll – ekki byrja á því að fara og fá ykkur að borða.
  • Ef starfsstaður hefur skipulagt matartíma fyrir sinn starfsstað vinsamlegast farið ekki öll lí einu og gerið það í samráði við póststjórann – Póststjóri ræður hvenær hver og einn fer í mat eða kaffi – Af gefnu tilefni: það er alveg ótækt að heilu starfsstaðirnir láti sig hverfa í x langan tíma og enginn veit neitt! Allir póstar verða að vera mannaðir öllum stundum.
  • Gæsluplan gildir að sjálfsögðu báða dagana, fyrir utan að þeir sem standa í pyttinum á föstudegi fara til sinna starfsstöðva á laugardeginum. Einnig verður vakt í brosherbergi i lágmarki á laugardeginum
  • Síðast en ekki síst er það mikilvægasta að við sinnum vinnunni okkar vel, verum vakandi og hjálpumst að!

 

Póststjórar

  • Laugardalshöll er skipt niður í svæði og hverju svæði er svo skipt enn frekar (sjá meðfylgjandi yfirlitsmynd)
  • Svæðin skiptast svona eftir landshlutum;

Svæði C- Kópavogur, Reykjanes og Kraginn

Póstjórar: Sigurður og Ingibjörg starfsmenn ÍTK

 

Svæði D – Norðuland, Austurland og Vesturland/Vestfirðir

Póststjórar: Gigga, Skagaströnd, Sigurþór Borgarnesi  og Linda Akureyri.

 

Svæði E – Reykjavík

Póststjórar: Ragnar og Arndís starfsmenn SFS

 

Svæði F – Hafnarfjörður og Suðurland

Póststjórar; Sigþóra úr Vestmannaeyjum, Valur Rafn úr Þorlákshöfn og Agnar úr Hafnarfirði

 

  • Póststjórinn hringir svo í einn tengilið frá hverri félagsmiðstöð og upplýsir hvaða svæði (innan svæðis) hver og ein félagsmiðstöð á svo að hugsa um. Þessi sami tengiliður sér svo um að upplýsa samstarfsmenn sína.
  • PÓSTSTJÓRINN ER YFIRMAÐUR Á SÍNU SVÆÐI OG GETUR OG MÁ SEGJA FÓLKI TIL EF HONUM/HENNI ÞYKIR EINHVER EKKI VERA AÐ SINNA SÍNU HLUTVERKI.

Þegar ballið er búið.

  • Meðfylgjandi er yfirlitsmynd yfir þá staði þar sem rúturnar frá mismunandi landshluta eiga að bíða eftir krökkunum eftir að ballið er búið. Nauðsynlegt er að krakkarnir viti þetta líka. Gott er ef að það er hægt, að starfsmenn og unglingar komi sér annahvort saman um að hittast á ákveðnum stað annað hvort við rútuna sem verður á vissum stað, eða fyrir utan höllina að ballinu loknu.

Á söngkeppninni.

  • Eins og á ballinu, þá er unglingum ekki leyfilegt að koma á eigin vegum, allir verða að koma í fylgd með sinni félagsmiðstöð - helst í rútu.
  • Húsið opnar kl. 12.00 en opnað verður í salinn kl. 12.30
  • Þegar starfsmenn koma með unglingana eiga þeir að fara beint á sín gæslusvæði eins og á föstudagskvöldinu.
  • Pössum okkur á að detta ekki í letigírinn, sitja bara og horfa á.
  • Biðjum unglingana um að vera ekki með mikil læti, vegna þess að keppnin verður í beinni útsendingu á RÚV einum og því verðum við að lágmarka ráp.
  • Annars er allt eins og á föstudeginum.

Kaffistofa starfsmanna.

  • Kaffistofa starfsmanna verður undir stúkunni eins og í fyrra. Við viljum hinsvegar hvetja starfsmenn að vera annaðhvort búnir að borða eða taka með sér nesti.  Ekki er leyfilegt að skreppa í burtu án þess að láta póststjóra vita. Núna eiga allir að vera meðvitaðir um hver er sinn póststjóri.

Förum öll varlega í umferðinni og göngum hægt um gleðinnar dyr