Aðalfundur Samfés 2012

Fundarboð

Aðalfundur Samfés

12. -13. apríl 2012

 

Aðalfundur Samfés verður haldinn í Reykjavík dagana 12. – 13. apríl 2012.

Fundurinn hefst fimmtudaginn 12. apríl kl. 10:00 með nafnakalli og afhendingu kjörbréfa. Áætlað er að fundinum ljúki klukkan 13:00 föstudaginn 13. apríl.

Bindandi skráningu þarf að vera lokið fyrir 2. apríl 2012. Skráning er sem fyrr á   Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Þeir aðildarfélagar sem ekki sjá sér fært um að mæta eru beðnir um að tilkynna forföll. Gott væri ef útskýring væri meðfylgjandi.  Tilkynningarfrestur er 2. apríl.

Fundurinn fer fram í Hlöðunni í Gufunesbæ (Grafarvogi)

Samfés hefur ekki milligöngu um gistingu fyrir þá sem þess þurfa

Fundarkostnaður er 8.000 krónur en innifalið í því verði er:

Fundargögn

1 x hádegismatur

3 x kaffi og með því

1 x hátíðarkvöldmatur

Sendur verður út reikningur fyrir fundarkostnaðinum í vikunni eftir fundinn.

Mælst er til þess að allir mæti allan þann tíma sem fundur stendur yfir – líka í hátíðarkvöldverðinum, því það er svo gaman að vera saman.

Dagskrá:

1.      Skýrsla stjórnar

2.      Ársreikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar

3.      Inntaka nýrra félaga

4.      Lagabreytingar

5.      Kosningar skv. 7. og 8. -grein laga samtakanna

a) Formann
b) Varaformann
c) Ritara
d) Gjaldkera
e) 1 meðstjórnanda
f) 1.- 3. varamaður
g) 2 skoðunarmenn reikninga samtakanna
h) 1 skoðunarmann reikninga til vara

6.      Önnur mál