
Stíll 2009 var haldinn í 9. sinn í Vetrargarði Smáralindar laugardaginn 21. nóvember. Þema keppninnar var „endurvinnsla“ og mátti sjá alveg ótrúlegustu útfærslur af kjólum úr hinum ótrúlegustu efnum og frábærar hárgreiðslur og förðun. Alls tóku 62 lið þátt alls staðar að af landinu. Sigurvegararnir í ár komu frá félagsmiðstöðinni Óríón frá Hvammstanga en þær bjuggu til kjól úr notuðum bíldekkjaslöngum.
Félagsmiðstöðin Þeba í Kópavogi hlaut annað sætið, 105 það þriðja. Mekka úr Kópavogi var í því fjórða og svo var það Garðalundur sem var í fimmta sæti. Félagsmiðstöðin Flógyn af Kjalarnesinu var fékk verðlaun fyrir bestu hárgreíðsluna og Mosinn í Hafnarfirði fyrir bestu förðunina. Verðlaun fyrir bestu hönnunina hlaut Rauðagerði í Vestmannaeyjum og svo hlaut Garðalundur úr Garðbæ verðlaun fyrir bestu möppuna.

Óríón Hvammstanga

Þeba, Kópavogi

105, Reykjavík

Mekka, Kópavogi

Garðalundur, Garðabæ

Rauðagerði, Vestmannaeyjum

Flógyn, Kjalarnesi
.
Við óskum öllu þessu hugmyndaríka fólki innilega til hamingju!
