Árlegt Æskulýðsball fór fram í menningarhúsi Borgarbyggðar s.l. fimmtudag. Þetta var í 18 skipti sem félagsmiðstöðin Óðal stendur fyrir dansleik fyrir unglinga af öllu Vesturlandi og víðar í tengslum við forvarnadaga í félagsmiðstöð og skólum.
Félagsmiðstöðin Óðal Borgarnesi hélt upp á 20 ára starfsafmæli sitt í apríl s.l.
Frábær stemning var á þriggja daga afmælishátíð Óðals sem sett var upp í apríl af þessu tilefni.
Arnardalur 30 ára.
Í tuttugu og átta ár og tuttugu daga þjónaði Arnardalur við Kirkjubraut 48 hlutverki sínu sem félagsmiðstöð unglinga. Húsið sem hýsti Ingimar Magnússon smið og fjölskyldu hans á árunum 1925-1936 og þjónaði svo hlutverki elliheimilis næstu fjörutíu ár þar á eftir.
Ef maður er dramatískur þá getur maður sagt að það hafi kostað blóð svita og tár að koma því í gegn að fá Arnardal á sínum tíma undir starfsemi fyrir unglinga. Nokkrum sinnum var tillagan felld í bæjarstjórn en menn voru ekki á því að gefast upp. Þessi barátta var fyrir rúmum 30 árum og var Akranes með þeim fyrstu utan Reykjavíkur að opna félagsmiðstöð af þessu tagi. Má segja að unglingar á Akranesi hafi komið að húsinu strax frá upphafi með vinnuframlagi. Veggir voru rifnir niður og öll sú vinna fór fram í sjálfboðavinnu af unglingum og nefndarmönnum í æskulýðsnefnd. Nefndin hafði 8 milljónir í verkefnið og tókst alla tíð að halda sig innan fjárhagsáætlunar meðal annars vegna þess hve margir voru virkir í að vinna verk í sjálfboðavinnu. Húsnefnd, skipuð unglingum var kosin strax í upphafi starfseminnar og allar götur síðan hefur einhverskonar unglingaráð verið virkt í starfseminni.