Félagsmiðstöðin Arnardalur 30 ára



Arnardalur 30 ára.

Í tuttugu og átta ár og tuttugu daga þjónaði Arnardalur við Kirkjubraut 48 hlutverki sínu sem félagsmiðstöð unglinga. Húsið sem hýsti  Ingimar Magnússon smið og fjölskyldu hans á árunum 1925-1936 og  þjónaði svo hlutverki elliheimilis næstu fjörutíu ár þar á eftir.

Ef maður er dramatískur þá getur maður sagt að það hafi kostað blóð svita og tár að koma því í gegn að fá Arnardal á sínum tíma undir starfsemi fyrir unglinga. Nokkrum sinnum var tillagan felld í bæjarstjórn en menn voru ekki á því að gefast upp. Þessi barátta var fyrir rúmum 30 árum og var Akranes með þeim fyrstu utan Reykjavíkur að opna félagsmiðstöð af þessu tagi. Má segja að unglingar á Akranesi hafi komið að húsinu strax frá upphafi með vinnuframlagi.  Veggir voru rifnir niður og öll sú vinna fór fram í sjálfboðavinnu af unglingum og nefndarmönnum í æskulýðsnefnd.  Nefndin hafði 8 milljónir í verkefnið og tókst alla tíð að halda sig innan fjárhagsáætlunar meðal annars vegna þess hve margir voru virkir í að vinna verk í sjálfboðavinnu. Húsnefnd, skipuð unglingum  var kosin strax í upphafi starfseminnar og allar götur síðan hefur einhverskonar unglingaráð verið virkt í starfseminni.

 

 

Þorpið – Frístundamiðstöð.

Þann 6.september 2007 samþykkti bæjarráð Akraness tillögu tónstunda og forvarnarnefndar um að settur yrði á fót starfshópur um framtíðarsýn í æskulýðsmálum.Umræður fóru strax  af stað um húsnæði, starfsemi og fyrirkomulag. Niðurstaða þeirrar vinnu var m.a sú að áfram yrði unnið markvisst að uppbyggingu fjölbreyttrar æskulýðs – og tómstundastarfsemi á Akranesi með það að leiðarljósi að vera vakandi fyrir þörfum samfélagsins á hverjum tíma og finna á hvaða hátt hægt er að mæta þeim. Starfsemi mótast að sjálfsögðu af því húsnæði sem hýsir hana og starfshópurinn var sammála um að brýn nauðsyn væri að stækka húsnæði Arnardals.  Frístundamiðstöðin Þorpið hóf starfsemi sýna að Þjóðbraut 13 í janúar 2008. Frístundamiðstöðin hýsir félagsmiðstöðina Arnardal, Hvíta húsið, ungmennahús og Fjörfiska, tómstundir fyri fatlaða ásamt ýmiskonar annari starfsemi.

Með flutningunum varð bylting í aðstöðu fyrir ungt fólk í bænum en auk þess breyttist starfsemin mikið og varð enn umfangsmeiri en áður hafði verið.

Einhvers staðar stendur að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.  Húsið okkar er eins og lítið þorp. Hér iðar allt af lífi frá morgni til kvölds og þannig viljum við hafa það. Hér hjálpa eldri krakkarnir þeim sem yngri eru og hér sýnum við samábyrgð. Hér geta allir átt sér athvarf, hvernig svo sem aðstæður eru heima fyrir eða í skólanum. Hér viljum við að allir sem þess óska geti varið frítíma sínum í skipulögðu tómstundastarfi án áfengis og vímuefna. Hlutverk félagsmiðstöðva og frístundahúsa er að stuðla að jákvæðum þroska unglinga og gera þau sjálfstæðari, bæði í verki og félagslegum samskiptum og gera þau hæfari til að takast á við lífið.

Til hamingju unglingar á Akranesi.

 

 

 

 

Samfés á Facebook

facebook_logo

Skoðanakönnun

Ferðu á landsmót