20 ára afmælishátíð Óðals Borgarnesi

Félagsmiðstöðin Óðal Borgarnesi hélt upp á 20 ára starfsafmæli sitt í apríl s.l.
Frábær stemning var á þriggja daga afmælishátíð Óðals sem sett var upp í apríl af þessu tilefni.

 

Sýning var sett upp í miðstöðinni úr starfi liðinna ára í máli og myndum og var hún vel sótt og mikið gaman þegar eldri „unglingar“ hittust aftur í félagmiðstöðinni eftir mörg ár, margir orðnir feður og mæður, læknar og lögfræðingar eins og gengur í lífinu. Greinilega á Óðal stað í hjarta margra það sýndi sig á þeim fjölmörgu gestum sem komu í heimsókn.  Haldnir voru magnaðir afmælistónleikar í menningarsal menntaskólans og þar fór á kostum vinsælasta tónleikaband landsins Dikta og þurftu þeir að spila mörg aukalög fyrir ánægða tónlistagesti.  Næsta víst að þessir drengir eiga eftir að ná langt í framtíðinni svo vel spilandi er þetta band og með sinn eigin stíl á lögum sem þeir flytja af mikilli innlifun.  Útvarp Óðal 101.3 var í loftinu afmælisdaganna með tónlist og fróðlega þætti um starfið s.l. 20 ár.  Afmælisdagsránni lauk svo með öðrum tónleikum og nú voru það unglingarnir sem skemmtu ásamt fjölmörgum söngfuglum og hljómsveitum sem stigið hafa á stokk í Óðali í söngkeppnum og viðburðum á liðnum 20 árum. Tókst þessi góða hugmynd mjög vel og margir flottir stigu á svið sem hafa haldið áfram að syngja m.a. í söngvakeppni framhaldsskólanna.

Vonandi heldur starfið áfram að vaxa og dafna í Óðali hér eftir sem hingað til.

Kveðja úr Borgarnesi.

Indriði Jósafatsson