ECYC

Heimasíða ECYC er www.ecyc.org

Skammstöfunin ECYC stendur fyrir European Confederation of Youth Clubs og útleggst á íslensku sem Evrópusamtök félagsmiðstöðva. Þessi samtök voru stofnuð árið 1979 með því markmiði að:


  o Stuðla að samvinnu milli landsamtaka félagsmiðstöðva í Evrópu
  o Auka alþjóðavitund ungs fólks
  o Stuðla að og standa fyrir ungmennaskiptum, námskeiðum  og ráðstefnum
  o Hvetja ungt fólk til þátttöku á öllum sviðum samfélagsins

ECYC nýtur stuðning frá Evrópuráðinu (Council of Europe) og Evrópu unga fólksins (Youth In Action).


Innan ECYC eru í dag um það bil 18.000 félagsmiðstöðvar í 27 löndum sem spanna Evrópu frá Íslandi í norðri til Kýpur í suðri. Má reikna með að yfir 3,5 milljónir ungmenna taki þátt í starfi félagsmiðstöðvanna og verkefnum ECYC.

Innan ECYC eru meðlimirnir 28 samtök frá 27 löndum sem spanna Evrópu, frá Íslandi í norðir til Kýpur í suðri. Ná reikna með að yfir 2,2 milljónir ungmenna taki þátt í starfi félagamiðstöðvanna og verkefnum ECYC á ári hverju. Öll þessi samtök eiga það sameiginlegt að vera landsamtök félagsmiðstöðva í viðkomandi landi. Þannig eru einstaka félagsmiðstöðvar ekki aðilar að ECYC beint. Fyrir félagsmiðstöðvar á Íslandi er Samfés aðili að ECYC. Öll aðildarsamtökin eru sjálfstæð innan ECYC og með sjálfstæða stjórn og þess vegna er orðið Confederation notað í enska nafni samtakanna.

Helstu verkfæri ECYC til að vinna að markmiðum sínum eru námskeið og ráðstefnur fyrir ungt fólk, ungmennaskipti einstakra félagsmiðstöðva, starfsmannaskipti í félagsmiðstöðvum og samtökum, þróun æskulýðsstarfs t.d. í gegnum leiðtogaþjálfun, uppbygging nets milli meðlima um ákveðin málefni sem áhugi er á hverju sinni og stefnumótun í ákveðnum málaflokkum t.d. þátttöku í samfélaginu, æskulýðsstarf með stúlkum eða jafningjafræðsla.

ECYC hefur haft það að einu aðalmarkmiði sínu undanfarin ár að kynna og stuðla að áframhaldandi þróun á opnu æskulýðsstarfi (open youthwork). Tilgangur opins æskulýðsstarfs er að gefa ungu fólki tækifæri á að þroskast í gegnum reynslu sem kennir þeim að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi sem og að þroska þá sem einstaklinga. Opið æskulýðsstarf er unnið með sjálfviljugum þátttakendum sem eru í starfinu á þeirra eigin forsendum. Allir geta tekið þátt og engum er haldið fyrir utan starfið af neinum ástæðum s.s. vegna kyns, þjóðernis, litarháttar, fötlunar, trúar eða nokkurs annars.

Meðlimir ECYC

Eins og sagði að ofan eru aðilar innan ECYC 24 í dag á mismunandi stigum. Þessi samtök eru listuð hér að neðan. Á heimasíðu samtakanna www.ecyc.org er hægt að nálgast heimilisföng, símanúmer, netföng og nöfn tengiliða sem hægt er að hafa samband við.



Armenía       Federation of Youth Clubs, Armenia (FYCA)

Austurríki      bOJA – Bundesweites Netzwerk Offene Jugenbeit

                    ARGE JUZE 2009  

Belgía           Formaat, Jeugdhuiswerk Vlaanderen vzw

                    FCJMP, Fédération des Centres de Jeunes en Millieu Populaire

Búlgaría        BASH, Bulgarian Association for School Health

Kýpur           CYCO

Danmörk       Ungdomsringen

Eistland        Estonian Youth Club Union

England        UK Youth

Finnland        SETNL Setlementtinuorten Liitto ry

Georgia        YUPMMG Youth Union of Public Movement Multination Georgia

Ísland           Samfés Youth Club Organization of Iceland

Írland            Youth Work Ireland

Ítalía             CESAVO Centro Savonese di Servizi al Volontariato

Kosovo           Youth Association “Fisniket”

Lúxemborg   Daachverband vun de Letzebuerger Jugendklub

Moldóva        Youth Forum “New Moldova”

Noregur        Ungdom & Fritid, National federation of Youth Clubs

Rúmenía       FONGTR/RYNGOF Youth Non-Governmental Organizations Forum

Rússland       Russian Union of Youth (RUY)

Slóvenía       Youth Network MaMa

Spánn           Casal de Jove de Catalunya

Svíþjóð         Fritidsforum

Sviss            DOJ-AFAJ

Tékkland       SMK, Svaz Clubu Mladeza

Úkraína        Our Children

Þýskaland     JuNet e.V.


Skrifstofa ECYC er í Antwerpen í Belgíu hýst af Belgísku samtökunum Formaat

Stjórnskipan

Stjórn ECYC fer með málefni samtakanna á milli fastafunda. Í stjórninni eru fimm fulltrúar tilnefndir af aðildarfélögum forseti, aðalritari, gjaldkeri og þrír varaforsetar. Í dag er stjórnin skipuð eftirtöldum aðilum kjörnum á aðalfundi í Edinborg í júní 2010.

Forseti:            Alice Taylor                    UK Youth                England
                  

Gjaldkeri:        Christoforar Vouras         CYCO                     Kýpur

Varaforseti:     Joris DeBleser                Formaat                  Belgía

Varaforseti:     Anna Olvenius                 Fritidsforum           Svíþjóð

Varaforseti:     Emma Allakhverdyan       FYCA                     Armenía

Framkvæmdastjóri: Carmen Paun, með aðstetur í Belgíu.

Fastafundir ECYC eru nokkrir á kjörtímabilinu sem spannar tvö ár. Á einu tímabili er einn aðalfundur, tveir fulltrúaráðsfundir (Executive committee meetings) og tveir forseta og framkvæmdastjórafundir (Chief executive and presidents meetings). Á aðalfundi og fulltrúaráðsfundi mæta 1-5 fulltrúar frá aðildarfélögum. Fundirnir eru hýstir af aðildarsamtökum og því eru þeir á mismunandi stöðum hverju sinni.

Mikið hefur verið lagt í að auka þátttöku ungs fólks á öllum vígstöðvum ECYC undanfarin ár og vel hefur tekist til. Þannig hefur meðalaldur á fulltrúaráðsfundum og í stjórninni snarlækkað milli tímabila og svo hefur aðsókn ungs fólks aukist gríðarlega á námskeið og aðra viðburði skipulagða af ECYC. Vinnuplanið sem er í notkun núna miðar að því að auka þessa þátttöku ungs fólks enn meira.

Samstarfsaðilar
ECYC vinnur með fjöldanum öllum af öðrum samtökum og Evrópustofnunum. Til að fjármagna starfsemina sækir ECYC fjármagn til Evrópusambandsins og Evrópuráðsins eftir þeim leiðum sem þar eru til. Auk þess að fá fjármagn til ýmissa verkefna hefur ECYC átt sneið af stórum sjóði sem Evrópsk æskulýðssamtök fá úthlutað ár hvert, evrópska æskulýðssjóðnum (European Youth Foundation)

ECYC er fullgildur aðili að Evrópska æskulýðsvettvanginum (Youth Forum Jeunesse, YFJ) sem er stærsti samstarfsgrundvöllur æskulýðssamtaka í Evrópu. YFJ samanstendur af um 95 samtökum sem annaðhvort eru æskulýðssamtök einstakra landa eða samtök sem vinna að æskulýðsmálum á Evrópustigi. Þessi vettvangur vinnur mjög náið með Evrópusambandinu (EU), Evrópuráðinu (COE) og Sameinuðuþjóðunum ( UN) í öllum þeim málefnum sem snerta ungt fólk. YFJ er t.d. samstarfs og umsagnaraðilar um flest þau málefni sem EU tekur fyrir og snerta ungt fólk, þannig hefur YFJ verið með í vinnu við Hvítbókina um ungt fólk og þá vinnu sem henni fylgir allt frá upphafi.

Dæmi um verkefni ECYC
Til að sjá kjarnann í því sem að samtök eins og ECYC eru að gera er best að skoða verkefnin sem unnin hafa verið. Við tókum saman nokkur dæmi sem gætu skýrt vinnu ECYC betur.

Námskeið
ECYC stendur fyrir námskeiðum nokkrum sinnum á ári. Þar gefst ungu fólki kostur á að sækja þekkingu um hin ýmsu málefni sem koma sér vel í starfi á æskulýðssviði. Námskeiðin eru ýmist haldin á vegum meðlima ECYC eða í Æskulýðsmiðstöðvunum tveimur sem Evrópuráðið rekur  í Strasbourg og í Búdapest. Íslendingar hafa verið duglegir að nýta sér þessi námskeið til dæmis hafa einstaklingar héðan farið á.

  * Námskeið í upplýsingatækni í æskulýðsstarfi í Englandi
  * Leiðbeinendaþjálfun fyrir leiðbeinendur í æskulýðsstarfi í Rússlandi
  * Námskeið í óhefðbundnum kennsluaðferðum í Belgíu
  * Námskeið um þátttöku ungs fólks á öllum stigum samfélagsins í Frakklandi
  * Námskeið um æskulýðsstarf á átakasvæðum í Frakklandi
  * Námskeið um jafningjafræðslu og aðferðir í æskulýðsstarfi á Íslandi
  * Námskeið fyrir starfsfólk félagsmiðstöðva í Finnlandi

...og svo mætti lengi telja.

Gífurleg reynsla og þekking verða eftir hjá einstaklingum sem sækja svona námskeið og nýtist án efa í starfi þegar heim er komið. Það sem meira er að á þessum atburðum myndast tengslanet við fólk úr sama geira allstaðar að úr Evrópu. Uppúr þessu tengslaneti verða svo til ungmennaskiptin og samstarfsverkefnin sem eru eitt af aðalmarkmiðum ECYC.

Verkefni
Um Vorið 2004 lauk einu stærsta verkefni ECYC frá stofnun sem kallað var “Large Scale Project” (fullnægjandi þýðing á íslensku fannst ekki) Þetta verkefni tók tvö ár og þátttakendur voru átta samtök innan ECYC. Verkefnið miðaði að því að framleiða og gefa út þjálfunarefni fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða á æskulýðssviði um mismunandi efni.

  * Mannréttindi og umburðarlyndi í æskulýðsstarfi
  * Aðferðir í opnu æskulýðsstarfi
  * Samskiptahæfileikar
  * Tilgangur og hlutverk æskulýðsstarfs
  * Að skilja ungt fólk

Um þessi efni var svo gefið út efni sem að öllum er frjálst að nota til að standa fyrir þjálfun á þessum sviðum í sínu umhverfi. Allt efnið er fáanlegt á netinu undir slóðinni http://www.youth-work-training.org