UFN



Ungdom og Fritid i Norden hefur svipaða virkni fyrir Norðurlöndin eins og ECYC hefur fyrir Evrópu. Augljóslega einbeitir UFN sér meira að málefnum sem við eigum sameiginleg hér í norðri og leitar á mið sem eru okkur nær. Innan UFN eru meðlimir frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Álandseyjum og nú nýverið frá Eistlandi.

Markmið samtakanna er að stuðla að samstarfi milli félagsmiðstöðva, bæði starfsmanna og ungs fólks sem sækir félagsmiðstöðvarnar. Einnig heldur UFN námskeið og ráðstefnur sem miða að því að halda þeirri þróun áfram í æskulýðsstarfi hér á norðurlöndum enda leiðum við vagninn á mörgum sviðum miðað við vini okkar annarstaðar úr Evrópu. Á heimasíðu Samfés er lauslega farið yfir markmið UFN og þar stendur að markmið UFN séu;

  * Að vinna að lausn sameiginlegra norræna vandamála er snerta börn og unglinga.
  * Að standa fyrir námskeiðum, mótum og öðru er gefur unglingum á Norðurlöndum tækifæri til að kynnast.
  * Að vinna að námskeiðum og vinnuskiptum fyrir starfsmenn aðildarfélaganna.
  * Að miðla upplýsingum varðandi málefni barna og unglinga.

Undanfarin ár hefur UFN staðið fyrir fjölda námskeiða bæði fyrir starfsfólk og unglinga víðs vegar um Norðurlöndin. Samtökin hafa fengið styrki úr Norræna æskulýðssjóðnum til ýmissa verkefna. Einnig fær UFN oft á tíðum erindi til umsagnar frá Norðurlandaráðinu er snerta ungt fólk.

Þess má geta að Íslendingar hafa verið með formann UFN í 9 ár eða allt frá árinu 1995, það er Árni Guðmundsson sem gegnt hefur því embætti fyrir hönd Samfés.
 

Samfés á Facebook

facebook_logo

Skoðanakönnun

Ferðu á landsmót