Lög Samfés

1. gr.

Heiti samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi er Samfés. Samtökin eru frjáls félagasamtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Varnarþing samtakanna er í Reykjavík.

2. gr.

Samtökin eru landssamtök. Hlutverk þeirra er að standa fyrir starfi í félagslegu samhengi

Verkefni eru meðal annars:

* Að auka samskipti félagsmiðstöðva innanlands og utan
* Að standa fyrir fræðslu og námskeiðahaldi
* Að auka samstarf þeirra sem vinna á vettvangi frítímans

3. gr.

Aðilar að Samfés geta þær félags-, tómstunda og frístundamiðstöðvar orðið sem bjóða upp á skipulagt og opið æskulýðs- og tómstundastarf:

* þar sem öllum er heimil þátttaka óháð kynþætti, trúarbrögðum eða stjórnmálaskoðunum
* þar sem starfsemin byggist á lýðræðislegum vinnubrögðum
* þar sem starfað er eftir skilgreindum uppeldismarkmiðum
* þar sem starfað er eftir forvarnamarkmiðum sem samrýmast markmiðum samtakanna
* þar sem tekið er sérstakt mið af þörfum hinnar ófélagsbundnu æsku

Einnig geta skrifstofur æskulýðs- og tómstundamála orðið aðilar. Umsóknir um aðild eru bornar upp á aðalfundi

4. gr.


Rétt til setu á aðalfundi eiga allir aðildarfélagar hafi þeir greitt árgjald og séu skuldlausir við samtökin á síðasta reikningsári. Hver aðili hefur eitt atkvæði er til atkvæðagreiðslu kemur. Auk þess hafa fulltrúar Ungmennaráðs Samfés rétt til fundarsetu sem og eitt atkvæði er til atkvæðagreiðslu kemur.

5. gr.

Tillögur um breytingar á lögum samtakanna og umsóknir um aðild þurfa að berast stjórn a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund og skal kynna þær aðilum að samtökunum fyrir aðalfund.

6. gr.

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald í málefnum Samfés. Aðalfund skal halda fyrir lok apríl ár hvert. Aukafundi svo oft sem þurfa þykir. Til funda skal boða með í það minnsta 30 daga fyrirvara og dagskrá kynnt. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Árgjald skal ákveða á hverjum aðalfundi og skal eindagi þess vera 15. september ár hvert, í upphafi hvers starfsárs.

Dagskrá aðalfundar

1. Skýrsla stjórnar og nefnda.
2. Ársreikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar skv. 7. og 8. grein laga samtakanna.
6. Önnur mál.

Fundinum skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála, nema við lagabreytingar þarf 3/5 greiddra atkvæða fundarmanna til þess að breyting sé löglega samþykkt.

7. gr.

Stjórn Samfés skal kosin á aðalfundi. Kjósa skal:

a) Formann
b) Varaformann
c) Ritara
d) Gjaldkera
e) 1 meðstjórnanda
f) 1.- 3. varamaður
g) 2 skoðunarmenn reikninga samtakanna
h) 1 skoðunarmann reikninga til vara

Stjórnarmaður má lengst sitja í fimm ár samfellt. Honum er þá heimilt að bjóða sig fram til varastjórnar. Öðlast hann að nýju rétt til framboðs í aðalstjórn eftir eitt ár í varastjórn eða utan stjórnar. Ef sitjandi stjórnarmaður er kosinn formaður er heimilt að framlengja stjórnarsetu hans úr fimm í sjö ár. Hverjum aðila að samtökunum er aðeins heimilt að eiga einn fulltrúa í aðalstjórn eða einn fulltrúa í varastjórn.

Stjórnin framkvæmir stefnu samtakanna, stýrir málefnum þeirra á milli aðalfunda og gætir hagsmuna samtakanna í hvívetna. Stjórn hefur heimild til að ráða framkvæmdastjóra samtakanna. Hann framkvæmir ákvarðanir stjórnar og stýrir skrifstofuhaldi samtakanna

8. gr.

Á aðalfundi skal kjósa tengla í erlend samskipti, einn aðalmann og einn til vara í hver þau erlendu samtök sem Samfés er aðili að hverju sinni skv.9. gr. þessara laga. Tenglar og varamenn skulu fylgja kjörtímabili þeirra félaga sem Samfés er aðili að. Kjörgengir sem tenglar eru einungis þeir aðilar sem starfa innan aðildarfélaga Samfés.

9. gr.

Samtökin eiga aðild að Samtökum félagsmiðstöðva á Norðurlöndum, UFN. Samtökin eiga aðild að Samtökum félagsmiðstöðva í Evrópu, ECYC.

10. gr.

Stjórn skal taka saman ársskýrslu um starfsemi og verkefni samtakanna fyrir aðalfund og skal hún liggja frammi fyrir aðildarfélaga. Nefndir og starfshópar sem unnið hafa beint með eða fyrir samtökin skulu skila skýrslu/greinargerð um viðkomandi starfsemi eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Fundargerð aðalfundar skal send út til meðlima ekki síðar en mánuði eftir aðalfund

 

Samfés á Facebook

facebook_logo

Skoðanakönnun

Ferðu á landsmót