Siðareglur stjórnar Samfés

Siðareglur stjórnar Samfés – Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi

 

Stjórn Samfés er umhugað um að rækja skyldur sínar af alúð og með hagsmuni aðildarfélaga ávallt að leiðarljósi. Stjórnin gerir sér ljósa grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir fjárhagsumsýslu fyrir samtökin og þá hagsmuni sem þar liggja.

 

1.     Stjórn Samfés þjónustar aðildarfélög af alúð og virðingu.

2.     Stjórn Samfés fer ekki í manngreiningarálit.

3.     Stjórn Samfés gerir ábyrgar fjárhagsáætlanir sem allir stjórnarmeðlimir eru upplýstir um ársfjórðungslega.

4.     Stjórn Samfés aðhefst ekkert, hvorki í starfi né utan þess, sem rýrt getur orðstír samtakanna.

5.     Stjórn Samfés og aðrir kjörnir fulltrúar þiggja ekki persónulegar greiðslur nema fyrir skilgreint vinnuframlag.

6.     Stjórn Samfés og aðrir kjörnir fulltrúar þiggja ekki né gefa persónulegar gjafir sem greiddar eru af Samfés.

7.     Stjórn Samfés er bundin trúnaði við aðildarfélög sín og er þeim trúnaði ekki rift nema að brýnni nauðsyn og með sameiginlegri ákvörðun stjórnar.

8.     Stjórn Samfés og aðrir kjörnir fulltrúar ber að framfylgja lögum samtakanna.

9.     Stjórn Samfés, aðrir kjörnir fulltrúar og aðildarfélög geta skotið málum til siðanefndar Samfés hvenær sem er.