Tilgangur og markmið

Tilgangur og markmið

Markmið ungmennaráðs Samfés er að:

  • Halda á lofti jákvæðri umfjöllun um ungmenni

Hvernig gerum við það? Leita leiða við að komast að í fjölmiðlum. Senda út upplýsingar í gegnum heimasíðu og vefrit Samfés. Kynna starf Samfés og ungmennaráðsins fyrir öðrum. Búa til gagnagrunn um málefni ungs fólks þannig að ungmenni geti leitað í.

  • Að ungmenni komi að ákvarðanatöku samtakanna í öllum málum þeirra.

Að koma 2 – 3 ungmennum frá ungmennaráðinu inná samfés ráðið með fullorðnum. Við viljum vera með í ákvarðanatöku um þau mál sem snerta okkur.

  • Að gæta hagsmuna ungmenna í öllum málum s.s. umfjöllun, réttindamálum o.s.frv.

Að það sé ekki brotið á ungmennum varðandi réttindi þeirra og hagsmuni.

  • Að skapa grundvöll til þess að ungmenni geti komið saman og komið sínum skoðunum á framfæri.

Að halda landsþing og koma niðurstöðum áleiðis.

  • Að efla samfélagslega vitund annarra ungmenna og styðja þau til frekari þátttöku í lýðræðislegum ákvörðunum, bæði í þeirra heimabæ og á landsvísu.

Efla samband félagsmiðstöðva og krakkana sem nota það. Að fræða önnur ungmenni um hvernig þau geti tekið þátt í lýðræðislegu samfélagi.  Ekki bara virkja krakkana heldur líka starfsmennnina.

  • Ber ábyrgð á að efla félagslíf sem höfðar til allra hópa.

Vera meðvituð um skoðanir annarra. Það hafa ekki allir sama smekk og þú.

  • Að ungmenni hafi áhrif á viðburði sem Samfés stendur fyrir og verði ráðgjafar við undirbúning þeirra viðburða.

Tilnefna fulltrúa ungmennaráðsins í vinnuhópa þeirra verkefna sem Samfés stendur fyrir.

  • Að koma að stefnumótun Samfés

Að vera ráðgjafar í stefnumótun til framtíðar. Framfylgja þeirri stefnu sem tekin verður.