Um Ungmennaráð Samfés

 Ungmennaráð Samfés var stofnað árið 2005 og er lýðræðislega kjörið ráð ungmenna á aldrinum 13-16 ára (8. – 10. bekkur) alls staðar að af landinu

Kosningar til Ungmennaráðs Samfés fer fram á Landsmóti Samfés. Alls er kosið í 9 kjördæmum tvo aðalmenn og einn til vara, alls 18 aðalmenn og 9 varamenn. Annar aðalmaðurinn er kosinn til 2ja ára en hinn til eins árs. Varamaður er kosinn til eins árs. Allir þátttakendur á landsmóti hafa rétt til að bjóða sig fram í Ungmennaráðið, þá hver fyrir sitt kjördæmi. Taka skal fram hvort viðkomandi hafi áhuga á að bjóða sig fram til eins eða tveggja ára.

Hver félagmiðstöð hefur eitt atkvæði þar sem sett eru tvö nöfn á blað. Ráðlagt er að unglingarnir ráðfæri sig sameiningu að undangengnum kjörfundi hvaða tveir aðilar fái atkvæði þeirrar félagsmiðstöðvar. Staðfesta þarf framboðið við upphaf landsmót en kjörfundir hefjast  um kl. 22.00 um kvöldið.

Ungmennráð Samfés er eina ungmennaráðið sem starfar á landsvísu, þ.e. fulltrúar í ráðinu eru alls staðar að af landinu.

Tilgangur Ungmennaráðs Samfés er að:

  • efla þátttöku ungmenna í félagsmiðstöðvastarfi
  • auka jafningjafræðslu
  • að ungmenni öðlist rödd í samfélaginu svo að ekki sé miðað allt við fullorðna
  • að ungmenni hafi tengiliði alls staðar af landinu til þess að ræða málefni sem snúa að þessum aldurshópi.
  • að efla Evrópusamstarf við önnur ungmenni
  • að hafa áhrif á viðburði á vegum Samfés
  • hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun

 

Annað sem vert er að vita

  • Ungmennaráðið fundar á u.þ.b. 6 vikna fresti í Reykjavík. Ef aðalmaður kemst ekki á fundinn skal hann boða varamann fyrir sig. Ferðakostnaður fundarmanna er greiddur af Samfés.
  • Ungmennaráð kemur inn á a.m.k. einn stjórnarfund hjá stjórn Samfés ásamt því að senda tvo fulltrúa á Aðalfund Samfés sem haldin er í apríl.
  • Ungmennaráð velur sér fulltrúa til að sitja í Stefnumótunar Samfés og Framkvæmdarhóp vegna Samféshátíðar.
  • Ungmennaráð heldur utan um Landsþing Ungmennaráðs sem nú er haldið samhliða Landsmóti.
  • Ungmennaráð starfar í veitingasölu á Landsmóti Samfés. Innkoman úr veitingasölunni er notuð til að niðurgreiða lýðræðisverkefni sem ungmennaráð tekur þátt í annað hvort á Íslandi eða erlendis.
  • Ungmennaráð kemur að ýmsum ákvarðanartökum innan Samfés s.s. vali á hljómsveitum fyrir Samfésball og undirbúningi fyrir viðburði Samfés.
  • Fulltrúar ungmennaráðs geta verið sendir á ráðstefnur og fundi um málefni tengd ungmennum og æskulýðsmálum hér á landi eða erlendis.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Svo er þetta bara alveg svakalega skemmtilegt og mikill lærdómur fyrir þau sem hafa áhuga á félagsmálunum og mikil vinátta hefur skapast á milli fyrrum ungmennaráðsmeðlima.

 

Hvatning frá fráfarandi ungmennaráði

Hefur þú áhuga á félagstarfi ungs fólks? Vilt þú geta haft áhrif á félagsmál ungmenna á landsvísu? Hefur þú skoðanir á málefnum sem snerta þig og önnur ungmenni á landinu? Viltu komast að því hvað öll þessi orð þýða? Ef svarið er já þá er ungmennaráð Samfés eitthvað fyrir þig ;*

Ungmennaráð Samfés er starfrækt ráð ungmenna í félagsmiðstöðvum landsins. Á Landsmóti Samfés eru kjörnir fulltrúar innan hvers kjördæmis til að sitja fundi ungmennaráðs. Frá hverju kjördæmi eru kosnir tveir aðalmenn og einn varamaður. Verkefni ungmennaráðs eru fjölbreytt en verkefni síðasta veturs voru meðal annars að halda Samfés festivalið, halda og velja þema fyrir Stíl, funda með menntamálaráðherra, verða viðurkenndir Kompás leiðbeinendur, fara á lýðræðis og jafnréttisráðstefnu UFN til Álandseyja og að fara í fimm daga ferð til dannmerkur á ráðstefnu. Eins og þú kannski sérð þá er ungmennaráð Samfés góður vettvangur til að koma skoðunum þínum á framfæri og kynnast öðru fólki sem hefur svipuð sjónarmið.


„Ungmennaráð Samfés hefur gefið mér mikið en ég vil meina að ungmennaráðið sé eitthvað fyrir alla sem vilja hafa áhrif á samfélagið auk þess að kynnast nýju og frábæru fólki sem allt deilir þeirri skoðun að vilja hafa áhrif, ég til að mynda kynntist bestu vinkonu minni í ungmennaráðinu“
-Adda Guðrún, Hafnarfirði

„ Ég kynntist æðislegu fólki og fékk tækifæri til að hafa áhrif á mál sem ég hef áhuga á“
- Eyrún Björg, Neskaupstað

„ég fékk mjög gott tækifæri til að hafa áhrif og ég lærði ýmislegt um fundarhöld sem ég tel að muni hjálpa mér í framtíðinni“
-Gunnar Torfi, Akureyri