UNGLINGAHLJÓMSVEITIR;
Tekið verður við umsóknum þeirra hljómsveita sem hafa áhuga á að spila á ballinu til 5. febrúar.
Allar frekari upplýsingar er að finna á www.samfes.is undir samféshátíð 2010.
SÖNGKEPPNIN
Nú eru forkeppnirnar vegna söngkeppninnar að klárast og vil ég minna ykkur á að skrá keppandann og lagið sem hann hyggst flytja eins fljótt og auðið er. Ef að keppandi tilkynnir lag sem þegar hefur verið skráð til keppni skal hann ásamt félagsmiðstöðinni finna annað lag til að syngja þar sem hvert lag verður aðeins sungið einu sinni. Það er því öruggara að skrá lagið fyrr en seinna.
Frestur til að skrá lag í lokakeppnina er til 31. janúar. (Nema Austurland sem heldur sína forkeppni í febrúar)
Það sem þarf að koma fram er
· Nafn kepppandans og félagsmiðstöð
· Heiti lags, íslenska titillinn, ef lagið er erlent þá þarf að nefna upprunalegt heiti og hver þýddi textann.
· Lögum sem ekki eru spiluð “live” verður að skila til Samfés í Miðbergi, Gerðubergi 1, 111 Reykjavík. Lögin, (eða playback-ið), verða að koma á geisladiski eða á mp3 formi með netpósti um leið og skráning á sér stað. Lagið þarf að vera komið í hendur framkvæmdastjóra Samfés þann 20. febrúar 2010. Munið að merkja lagið vel
BALLIÐ
· Miðasala verður með svipuðu sniði og í fyrra
· Ég er búin að senda út áætlaðan miðafjölda á hverja félagsmiðstöð og hef óskað eftir staðfestingu ásamt fjölda og nöfnum þeirra starfsmanna sem fylgja unglingunum. Er búin að fá ágætis hugmynd um mætinguna í ár og lítur út fyrir metþátttöku, svo nú skulið þið taka eftir.
Frestur til að panta miða á hátíðina er til 15. febrúar.
Ø Ef félagsmiðstöð hefur ekki staðfest mætingu fyrir þann tíma munu þeirra miðum verða dreift á aðrar félagsmiðstöðvar.
Greiða þarf fyrir miðana fyrir 19. febrúar kl. 16.00.
Ø Miðaverð er 2.500 kr.
Ø Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir 19. feb mun pöntun falla úr gildi.
Ø Vinsamlegast leggið andvirði miðana á reikning 301-26-988, kt. 650686-1799. Ekki gleyma að setja nafn félagsmiðstöðvar sem skýringu.
· Héðinn Sveinbjörnsson verður gæslustjóri ásamt Margréti Ægisdóttur og Magnúsi Guðmundssyni. Munu þau útnefna póststjóra sem svo verða í sambandi við starfsmenn símleiðis og í tölvupósti. Ekki gleyma að allir hafa hlutverk á hátíðinni. Við erum öll að vinna saman að því að gera ballið sem öruggast
