Aðalfundur Samfés

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald í málefnum Samfés. Aðalfund skal halda fyrir lok apríl ár hvert. Aukafundi svo oft sem þurfa þykir. Til funda skal boða með í það minnsta 30 daga fyrirvara og dagskrá kynnt. Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Árgjald skal ákveða á hverjum aðalfundi og skal eindagi þess vera 15. september ár hvert, í upphafi hvers starfsárs.


Dagskrá aðalfundar

1. Skýrsla stjórnar og nefnda.
2. Ársreikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar.
3. Inntaka nýrra félaga.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar skv. 7. og 8. grein laga samtakanna.
6. Önnur mál.

Fundinum skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála, nema við lagabreytingar þarf 3/5 greiddra atkvæða fundarmanna til þess að breyting sé löglega samþykkt.

Stjórn Samfés skal kosin á aðalfundi. Kjósa skal:

a) Formann
b) Varaformann
c) Ritara
d) Gjaldkera
e) 1 meðstjórnanda
f) 1.- 3. varamaður
g) 2 skoðunarmenn reikninga samtakanna
h) 1 skoðunarmann reikninga til vara

 

Hér má sjá fundargerðir aðalfunda sl ára

2011 Smelltu hér til að sækja 

2010 Smelltu hér til að sækja

2009 Smelltu hér til að sækja 

2008 Smelltu hér til að sækja

2007 Smelltu hér til að sækja  

 

Meðfylgjandi gögn í fundaboði

  • Lög samtakanna.Tillögur um breytingar á lögum samtakanna og umsóknir um aðild þurfa að berast stjórn a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund. 
  • Umsókn um aðild. Umsóknir um aðild þurfa að berast stjórn a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund Smelltu hér til að sækja
  • Ítarleg fundardagskrá. Umboð vinnuveitanda um stjórnasetu. Umboðið skal berast stjórn Samfés um leið og tilkynning um framboð. Smelltu hér til að sækja