Samfés hátíðin 2012 verður haldin í Laugardalshöllinni 2. - 3. mars næstkomandi.
TÓNLEIKARNIR
- 1 starfsmaður á 15 unglinga
- Allir unglingar skulu koma með sinni félagmiðstöð með rútu
- Viðburðurinn er tóbaks, áfengis og vímuefnalaus
- Reglur Samfés um klæðaburð gilda
Miðasala verður með svipuðu sniði og í fyrra.
Ég mun senda út áætlaðan miðafjölda á hverja félagsmiðstöð og óska eftir staðfestingu ásamt fjölda unglinga og fjölda og nöfnum þeirra starfsmanna sem fylgja unglingunum.
Miðaverð verður 2.700 kr. eða 200 kr. hærra en í fyrra.
Frestur til að panta miða á hátíðina er til 13. febrúar 2012.
Ef félagsmiðstöð hefur ekki staðfest mætingu fyrir þann tíma munu þeirra miðum verða dreift á aðrar félagsmiðstöðvar.
Greiða þarf fyrir miðana fyrir 17. febrúar 2012 kl. 16.00.
Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir 17. febrúar mun pöntun falla úr gild og miðum úthlutað annað.
Vinsamlegast leggið andvirði miðana á reikning 301-26-988, kt. 650686-1799. Ekki gleyma að setja nafn félagsmiðstöðvar sem skýringu.
Reglur Samfés gilda á þennan viðburð sem aðra
- Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
- Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
- Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
- Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum.
UNGLINGAHLJÓMSVEITIR
Tekið verður við umsóknum þeirra hljómsveita sem hafa áhuga á að spila á ballinu til 3. febrúar 2012. Það verður svo í höndum ungmennaráðs Samfés að velja þau bönd sem fá að koma fram.
Eftirfarandi eru skilyrði til að eiga möguleika:
- Fylla þarf út vel og vandlega þar til gert umsóknareyðublað sem er að finna á hér: Unglingahljómsveitir og senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
- Auk umsóknarformsins þarf að skila hljóðdæmi (upptöku) með efni hljómsveitarinnar sem notað verður þegar ungmennaráð Samfés velur hvaða hljómveitum verður boðið að spila.
- Hægt er að senda itunes hljóðfæl á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða...
- ...skila diski með efninu á skrifstofu Samfés að;
Gerðubergi 1
111 Reykjavík
MUNA AÐ MERKJA DISKINN VEL MEÐ NAFNI HLJÓMSVEITAR, SÍMANÚMERI OG FÉLAGSMIÐSTÖÐ.
EF HLJÓÐDÆMI BERST EKKI TELST UMSÓKN EKKI GILD!
- Til að hljómsveit geti tekið þátt þarf hún að skuldbinda sig til þess að hafa tilbúið og æft 15 – 20 mínútna prógram, sem eru ca. 5 – 7 lög.
- Að minnsta einn meðlimur hljómsveitar þarf að vera í 8. – 10. bekk!
- En sem fyrr þarf umsókn að berast frá starfsmanni í félagasmiðstöð sem þ.a.l. verður að. ábyrgjast meðlimi hljómsveitarinnar. S.s. hafi heyrt í hljómsveitinni, viti að hún eigi nógu mikið efni. Þekki til einstaklinganna og treysti sér til þess að ábyrgjast hegðun þeirra og framkomu. Sem sagt við treystum því að þið notið brjóstvitið og skynskemina í þessum efnum og trúið á þá einstaklinga sem þið eruð að hleypa að!
- Allir meðlimir hljómsveitar þurfa að fara eftir reglum Samfés, hátíðin er tóbaks, vímuefna og áfengislaus og reglur um klæðaburð gilda líka fyrir meðlimi hljómsveita.
- Meðlimir hljómsveitanna skulu vera sér og sínum til sóma og vanda allan flutning. Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annarra fíkniefna gefa ástæðu til að stoppa tónlistarflutninginn umsvifalaust og meðlimum vísað að sviðinu.
- Ekki gildir fyrir hljómsveit að bæta meðlimi á grunnskólaaldri í hljómsveitina rétt fyrir hátíð bara til þess að geta haft möguleika á því að sækja um að fá að spila.
- Samfés leggur til trommusett ( án cymbala – diska og kjuða ) tvo gítarmagnara, og einn bassamagnara. Önnur hljóðfæri verða hljómsveitirnar að verða sér út um.
- Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar kl. 16.00. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þennan tíma!
Eins og fyrr segir mun ungmennaráð Samfés sjá um að velja hljómsveitirnar sem spila. Þau hlusta á innsend lög án þess að vita hvað hljómsveit heitir, hverjir eru í henni eða hvaðan hún kemur og taka ákvörðun í kjölfarið. Reynt verður að miða að því að gefa sem flestum tónlistarstefnum séns til að hafa sem mesta fjölbreytni.
Meðlimir hljómsveitanna skulu vera sér og sínum til sóma og vanda allan flutning. Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annarra fíkniefna gefa ástæðu til að stoppa tónlistarflutninginn umsvifalaust og meðlimum vísað að sviðinu. Einnig þurfa meðlimir hljómsveita að fylgja reglum Samfés um klæðaburð.
- Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
- Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
- Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
- Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum.
DJ-ar
Ef þið hafið ungling í ykkar félagsmiðstöð sem gæti haft áhuga á því að vera DJ í upphafi hátíðar sendið mér upplýsingar um viðkomandi fyrir 14. febrúar 2012. Starfsmaður í félagsmiðstöðinni skal sjá til þess að unglingurinn hafi tilbúin a.m.k. 30 mín af efni til að spila. Upplýsingar um tæki og þvíumlíkt berst síðar.
Nafn viðkomandi verður sett í pott og dregið verður úr aðsendum nöfnum.
