LANDSMÓT SAMFÉS
5. – 7. OKTÓBER 2012 Á ÍSAFIRÐI
Helgina 5. – 7. október næstkomandi fer fram Landsmót Samfés og í þetta sinn verðum við á Ísafirði.
Langar mig að þið tilkynnið þátttöku með því að senda mér póst um fjölda unglinga og fjölda starfsmanna sem leggja land undir fót. Gott væri líka að fá póst frá þeim sem ætla ekki á Landsmót svo ég get verið viss um að allir hafi fengið póstinn. Mikið er af breytingum á haustinn og margir sem eru á póstlistanum hafa horfið til annarra starfa.
Skráningarfrestur er t.o.m. föstudagsins 21. september 2012 kl. 16.00
Nafnalisti er ekki nauðsynlegur fyrr en smiðjuskráningin fer fram . Smiðjulistinn mun liggja fyrir 28. september og skráning í þær hejast daginn eftir svo allir hafi haft jöfn tækifæri á að gera það uppvið sig hvað þau muni velja. Svo fylgist vel með því!
Sem fyrr er leyfilegt að senda 5 - 6 unglinga með 1 starfsmanni. Starfsmenn sem ekki eru með smiðjur verða settir í önnur verk og mun vaktaplan og verkaskipan liggja fyrir í vikunni fyrir Landsmótið.
Gist verður í Grunnskólanum á Ísafirði og önnur skemmtilegheit fara fram þar og í Bolungarvík. Hægt verður að komast í sturtu í sundlauginni, en nauðsynlegt er að úthluta tímum í það vegna fjölda.
KOSTNAÐUR
Þátttökugjald verður það sama og í fyrra eða 6.000 kr. pr mann.
*ath greitt er fyrir alla unglinga og starfsmenn nema þá sem eru með smiðjur. Sendir verða út reikningar fyrir þátttökunni eftir helgina.
Innifalið í verðinu;
- Gisting í tvær nætur
- Kvöldmatur föstudag og laugardagur
- Morgunmat: laugardag og sunnudag.
- Hádegismat: sunnudag (ath hádegismaður á laugardegi er ekki innifalinn, munið að láta krakkana vita af því – gefið verður hádegishlé í smiðjunum til að fara og kaupa sér eitthvað að borða).
- Þátttaka í smiðjum
- Þátttaka í landsmóti ungs fólks
- Dansíball
Nauðsynlegur útbúnaður
- Dýna – líka starfsmenn
- Svefnpoki - líka starfsmenn
- Nesti/peningur f. hádegismat á laugardegi
- Sundföt og handklæði fyrir þá sem vilja fara í sundlaugina
- Nauðsynlegur útbúnaður sem tilgreindur er í smiðjulýsingu. S.s. ákveðin fatnaður eða tæki og tól.
- Tannbursti, tannkrem, gel í hárið og góða skapið.
VARÐANDI SMIÐJUR
- Smiðjulistinn mun liggja fyrir á hádegi miðvikudagsins. 26. september.
- Byrjað verður að taka við skráningum í kl. 12 fimmtudaginn 27. september. Skráning sem berst fyrir þann tíma telst ógild.
- Skráning stendur til föstudagsins 28. september. Skráning í smiðjur telst jafnframt bindandi skráning á Landsmótið.
- Unglingum úr sömu félagsmiðstöð er ekki leyfilegt að velja sömu smiðjunar– ef svo verður sendi ég skráningareyðublaðið tilbaka og þið munuð tapa plássinu í röðinni. - svo vandið skráninguna vel .
- Nauðsynlegt er velja sé þrjár smiðjur. Enginn af þessum þremur möguleikum verður mikilvægari en annar - ekkert 1. 2. eða 3ja val – bara 3 smiðjur sem þau geta hugsað sér að taka þátt í . Svo undirbúið elsku blómin undir það að þau muni lenda í einhverri af þessum þremur möguleikum.
- Ef svo leiðinlega vill til að fullt verður í allar þær smiðjur sem unglingurinn valdi mun ég hringja í viðkomandi starfsmann og ég kynni fyrir honum þá möguleika sem í boði eru á þeim tímapunkti. Sem sagt ég mun ekki setja unglinginn í einhverja smiðju!
- Sem fyrr verður reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Ef skráning berst seint getur unglingur á von á því að vera settur í smiðju sem ekki er hans val – kemur það þá í hlut ykkar að gera sem best úr því. Ætla ég samt að reyna eftir fremsta megni að svo verði ekki.
VARÐANDI UNGMENNARÁÐ
Kosning í ungmennaráð Samfés fer fram á Landsmóti, nánar tiltekið á föstudeginum, En ungmennaráð Samfés samanstendur af 18 lýðræðislega kosnum fulltrúum úr öllum landshlutum.
Í viðhengi er nánari upplýsingar um ungmennaráð Samfés og langar mig að biðja ykkur um að kynna það fyrir krökkunum og hvetja þá krakka sem sýna því áhuga (eða sem þið teljið að geti haft áhuga) á því að bjóða sig fram.
Okkur langar að gera tilraun í ár með að fá inn framboð til ungmennaráðs fyrir landsmótið, þ.e. skila þarf inn nafni á frambjóðenda fyrir kl. 22.00 mánudaginn 1. október – erum við með þessu að reyna að fá unglingana og ykkur til að vera tilbúin með framboðsræðu og viti meira úti hvað þau eru að fara.
Best væri að um leið og smiðjuskráningin færi fram kæmi einnig fram nafn á þeim unglingi í þinni félagsmiðstöð sem gæti hugsað sér að bjóða sig fram til ungmennaráðs Samfés – því í fullkomnum heimi myndi hver og ein félagsmiðstöð útnefna að minnsta einn sem biði sig fram í ungmennaráð Samfés.
„Ungmennaráð Samfés hefur gefið mér mikið en ég vil meina að ungmennaráðið sé eitthvað fyrir alla sem vilja hafa áhrif á samfélagið auk þess að kynnast nýju og frábæru fólki sem allt deilir þeirri skoðun að vilja hafa áhrif, ég til að mynda kynntist bestu vinkonu minni í ungmennaráðinu“
-Adda Guðrún, Hafnarfirði
„ Ég kynntist æðislegu fólki og fékk tækifæri til að hafa áhrif á mál sem ég hef áhuga á“
- Eyrún Björg, Neskaupstað
„ég fékk mjög gott tækifæri til að hafa áhrif og ég lærði ýmislegt um fundarhöld sem ég tel að muni hjálpa mér í framtíðinni“
-Gunnar Torfi, Akureyri
DRÖG AF DAGSKRÁNNI
Dagskrá Landsmóts 201
Föstudagur, 5. október.
16:00-18:00 Mæting og skráning
18:00 Starfsmannafundur
18:30 Móttökuathöfn og setning Landsmóts
20:00-22:00 Frjáls tími með vali
22:15 Kynning á frambjóðendum og kosningar í Ungmennaráð
- 7 kjordæmi
23:00 úrslit úr kosningu til ungmennráðs kunngjörð.
23:30 Sofa
Laugardagur, 6. október.
08:00 Morgunmatur
09:15 Kallað í smiðjur
10:00 Smiðjur hefjast
16:00 Smiðjum lýkur
16:30- 18:00 Frjáls tími
18:30 Húsið opnar fyrir hátíðarkvöldverð
19:00 Hátíðarkvöldverður
20:00 Afrakstur úr smiðjunum
20:45 Ball
23:00 Ball búið
23:30 Allir í bólið
Sunnudagur, 7. október
08:30 Morgunverður
10:00 Landsþing ungs fólks Ungmennaráðs Samfés
13:00 Hádegismatur, mótsslit og heimferð.
Með kveðju,
Björg
