Rímnaflæði 2011
Rímnaflæði fer fram föstudaginn 18. nóvember í félagsmiðstöðinni Hundrað&ellefu (Miðbergi). Keppnin hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.30. Keppnin hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Á hverju ári sjáum við nýja og efnilega rappara sem sýna frábæra laga – og textasmíð. Í ár verður Rímnaflæði haldið í 12. sinn í Miðbergi.
Skráning fer fram á meðfylgjandi skráningarblað og skal það sendast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 14. nóvember. Mikilvægt er að fylla út allt skráningarblaðið . Ásamt skráningarblaði skal skila blaði með texta lags.
Stig eru gefin fyrir innihaldsríka texta, flæði og lögin sjálf í heildina. Aðstandendur Rímnaflæðis áskilja sér rétt til að meina þátttöku eða fara fram á breytingu ef texti þykir ekki samræma reglum Rímnaflæðis.
Keppnin er einungis fyrir krakka í 8. – 10. bekk.
480 miðar eru í boði og er miðaverð 500 kr. Reglan fyrstur kemur fyrstur fær gildir. Vil ég beina því til ykkar að vera snögg að tryggja ykkur miða, því reynsla síðustu tveggja ára var sú að færri komumst að en vildu.
Miðasala fer fram í félagsmiðstöðvunum ykkar, og stendur til kl. 16.00 miðvikudags 15. nóvember. Þegar ljóst er hversu marga miða þið þurfið sendið þið miðpapöntunarformið á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Vinsamlegast leggið andvirði miðana inná reikning Samfés: 301-26-988, kt. 650686-1799. Ekki gleyma að setja nafn félagsmiðstöðvar sem skýringu.
Miðarnir verða tilbúnir til afhendingar í Miðbergi sama dag og Rímnaflæði fer fram.
Rímnaflæði er viðburður á vegum Samfés og lýtur sömu reglum og aðrar samkomur af þessu tagi. Þ.e starfsmaður skal fylgja bæði keppendum og áhorfendum á keppnina og verði á staðnum frá upphafi til enda. Þar með talið undirbúningur keppenda og soundcheck fyrr um daginn. Af gefnu tilefni vill ég endurtaka og ítreka að áhorfendum er ekki heimilt að mæta á staðinn á eigin vegum heldur verða allir að koma saman, þ.e. með sinni félagsmiðstöð og starfsmanni.
Reglan um einn starfsmann með 15 unglinga gildir.
Reglur Rímnaflæðis
- Keppendur og áhorfendur verða að vera á grunnskóla aldri (8. – 10. bekk)
- Lög og textar eiga að vera samin af keppendum. Stuldur á takti og ítrekaður stuldur á textabrotum mun snarlækka einkunn frá dómurum.
- Neysla tóbaks, áfengis og vímefna er stranglega bönnuð. Keppendum og áhorfendum verður vísað út ef upp kemst um slíkt. Ölvun ógildir miðann.
- Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annarra fíkniefna snarklækka einkunn frá dómurum. Hægt er að vísa keppendum frá ef um gróft brot er að ræða.
- Eitt lag á keppenda. Hágmarks lengd atriðis 6 min. Hámarksfjöldi þátttakenda á sviði er 6 manneskjur.
- Skilríkjaskylda.
