Þrjátíu atriði komast áfram í lokakeppni Söngkeppni Samfés að undangengnum forkeppnum í hverjum landshluta. Fjöldi sæta sem hver landshluti fær er ákvarður út frá hlutfalli annars vegar fjölda félagsmiðstöðva í landshlutanum og hins vegar fjölda ungmenna (sjá hér fyrir neðan). Fjöldinn sem hver landshluti fær getur breytst á milli ára.
- Hver félagsmiðstöð má aðeins hafa eitt atriði í lokakeppninni án tillits til þess hve mörg atriði frá sömu félagsmiðstöðinni röðuðu sér í efstu sætin í forkeppninni.
- Hvert lið má innihalda einn eða fleiri söngvara ásamt bakröddum, hljóðfæraleikurum og dönsurum. Allir flytjendur í liðinu þurfa að vera á aldrinum 13-16 ára (8. - 10. bekk).
- Eiga öll lögin að vera flutt á íslensku. Lagið má að sjálfsögðu vera erlent en þá þarf að íslenska textann, gefin er sérstök viðurkenning fyrir vél þýddan texta.
- Keppandi verður að syngja sama lag í lokakeppninni og hann söng í undankeppninni.
- Söngkeppni Samfés fer ávallt fram fyrsta laugardaginn í marsmánuði ár hvert og þurfa öllum undankeppnum verður að vera lokið í lok janúar.
- Að undankeppnum loknum þarf að senda Samfés tilkynningu um úrslit á þar til gert skráningarform Skraningarform_songkeppni.xls og senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 31. janúar.
- Mjög mikilvægt er að allar upplýsingar komi fram annars telst umsókn ekki gild.
- Ef að keppandi tilkynnir lag sem þegar hefur verið skráð til keppni skal hann ásamt félagsmiðstöðinni finna annað lag til að syngja þar sem hvert lag verður aðeins sungið einu sinni. Það er því öruggara að skrá lagið fyrr en seinna.
Varðandi lagið:
- Lengd lags má ekki fara yfir 3 mín. – dregið verður niður í lagi eftir 3 mínútur og gæti það þýtt mínus stig hjá dómnefnd.
- Textum skal skila ásamt skráningu. Taka þarf fram höfund texta og ef um þýðingu er að ræða þarf að taka fram hver þýðir.
- Ef sungið er með undirspili eða playback - i er æskilegt að senda lögin með tölvupósti á mp3 formi samhliða skráningu. Lögum sem ekkir eru spiluð „live“ verður að skila til Samfés í Miðbergi, Gerðubergi 1, 111 Reykjavík. Lagið þarf að vera komið í hendur framkvæmdastjóra Samfés fyrir 20. febrúar. MUNIÐ AÐ MERKJA LAGIÐ VEL!
- Undirspil skal vera algerlega án söngs (forsöngs) bakraddir eru þó leyfilegar. ATH! - Það er ekki hægt að taka venjulegt lag og draga niður í söngnum!
- Mikilvægt er að keppendur fái þjálfun í að syngja í míkrafón hjá sinni félagsmiðstöð til að tryggja að flutningurinn komist til skila.
- Keppendur þurfa að vera búnir að tryggja að gæði lagsins séu í lagi, bæði hljóðgæðin og að engar rispur eða bilanir séu í því.
Aðstaða á sviði:
- Fullt backline, þ.e. trommursett, gítar- og bassamagnari og hljómborð.
- Leyfilegt er að hafa önnur létt hljóðfæri s.s. fiðlu, blásturshljóðfæri og kassagítar
- Einungis er hægt að nota hljóðfæri sem hægt er að stinga beint í samband með “jack tengi” eða hægt að stilla upp fyrir framan einn míkrófón.
- Vinsamlega athugið ástand hljóðfæranna, þ.e. strengir séu í lagi, rafhlöður til staðar o.fl.
- Allir hljóðfæraleikarar á sviði verða að vera á aldrinum 13-16 ára (í 8.-10. bekk)
- Félagsmiðstöðvar þurfa að passa upp á að flutningur viðkomandi liðs sé innan siðsamlegra marka s.s. klæðnaður og framkoma. Samfés áskilur sér rétt til þess að stöðva atriði sé þessu ekki nægilega fylgt eftir.
- Keppendum verður raðað upp af handahófi í keppninni.
- Boðið verður upp á hljóðprufur og rennslisæfingu á keppnisdegi. ATH ekki er víst að hægt sé að renna í gegnum allt lagið.
Hér má sjá fjölda keppenda frá hverjum landshluta í lokakeppninni:
Austurland 2 sæti
Norðurland 5 sæti
Vesturland 3 sæti
Suðurland 3 sæti
Reykjanes og Garðabær, Álftanes, Mos og Seltjarnarnes 4 sæti
Reykjavík 8 sæti
Kópavogur 3 sæti
Hafnarfjörður 2 sæti
Hér má sjá útreikninga fyrir hvern landshluta/stað. Við fjöldatölur notaðist ég við hagtölur Hagstofunnar frá því um áramótin síðustu.
|
Staður |
Unglingar tótal |
Félagsmiðst tótal |
Fjöldi í lokakeppni m.v. fj. ungl. |
Fjöldi í lokakeppni mv.v fjöldi f.mst |
Nýr stuðull meðaltal |
|
|
Reykjavík |
4.389 |
24 |
9,7 |
6,9 |
8,3 |
|
|
Kópavogur |
1.225 |
9 |
2,7 |
2,6 |
2,7 |
|
|
Hafnarfjörður |
1.174 |
7 |
2,6 |
2,0 |
2,3 |
|
|
Garðabær |
486 |
1 |
1,1 |
0,3 |
0,7 |
|
|
Álftanes |
145 |
1 |
0,3 |
0,3 |
0,3 |
|
|
Mosfellsbær |
424 |
1 |
0,9 |
0,3 |
0,6 |
|
|
Seltjarnarnes |
234 |
1 |
0,5 |
0,3 |
0,4 |
|
|
Reykjanes |
1.027 |
5 |
2,3 |
1,4 |
1,9 |
|
|
Suðurland |
1.165 |
9 |
2,6 |
2,6 |
2,6 |
|
|
Vesturland |
694 |
9 |
1,5 |
2,6 |
2,1 |
|
|
Vestfirðir |
366 |
6 |
0,8 |
1,7 |
1,3 |
|
|
Norðurland |
1.658 |
19 |
3,7 |
5,5 |
4,6 |
|
|
Austurland |
564 |
12 |
1,2 |
3,5 |
2,4 |
|
|
Alls: |
13551 |
104 |
30,0 |
30,0 |
30,0 |
|
|
Stuðull |
0,0022 |
0,2885 |
