STÍLL

Stíll er keppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel. Keppt hefur  verið í Stíl undir formerkjum Samfés og ÍTK frá því á árinu 2000 en löng hefð hefur verið í Kópavogi sambærilegri keppni.

Markmið Stíls eru:

  • Hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika.
  • Vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa þeim kost á að koma sínum hugmyndum á framfæri utan félagsmiðstöðvanna.
  • Að unglingarnir komist í kynni við fleiri sem hafa áhuga á sama sviði.


Reglur

  1. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið, skipað 2 til 4 einstaklingum (þar með talið módelið) úr 8.-10. bekk í grunnskóla.
  2. Að klæðnaður sé innan siðferðilegra marka. Miðað skal við að a.m.k. 1/3 hluti líkamans skuli vera hulinn flík.
  3. Öll vinna keppenda við módel (hár og förðun) verður að fara fram á svæðinu, ekki er heimilt að undirbúa módelið á neinn hátt áður en að keppnin hefst. Þ.m.t. neglur.
  4. Á keppnisstað verða þátttakendur að standa sjálfir skil á sinni hönnun/sköpun og utanaðkomandi aðstoð er bönnuð (svo sem starfsmenn, foreldrar eða aðrir).
  5. Teikningar og útskýringar (mappan) verða að afhendast umsjónarmönnum keppninnar áður en keppni hefst, við komu liðs á keppnisstað.
  6. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðva athugi og fylgist með efniskostnaði keppnisliða og reyni að stýra því að hann sé innan skynsamlegra marka. Ágætt er að miða við að heildarkostnaður fari ekki upp fyrir 15.000 krónur á hóp. Gott er taka fram í möppu heildarkostnað við hönnunina og í hvað kostnaðurinn fer. Hér fyrir neðan er að eyðublað sem ætluð eru til að skrifa niður hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengin og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja blaðinu. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal tekið fram hvar/hver hafi gefið/lánað efnið eða hlutinn.

 

Skráning

Óskað er eftir skráningu u.þ.b. þremur vikum fyrir keppni. Í skráningu þarf að koma fram: fullt nafn á þátttakendunum fjórum og hvert þeirra er módelið, og frá hvaða félagsmiðstöð liðið kemur.

Þátttökugjald er 5.000 kr á lið sem skal greitt við skráningu. Greiða skal þátttökugjald á reikning 301-26-988, kt. 650686-1799. Taka skal fram í skýringu hvaða félagsmiðstöð greiðir. Ef óskað er eftir reikningi fyrir þátttökugjaldi skal óska sérstaklega eftir því við framkvæmdastóra Samfés. Ef þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir keppnisdag mun viðkomandi lið falla úr keppni.

Til að kynnir geti gert góða grein fyrir hverri flík / hönnun á sviði, óskum við að fá efnislýsingu og hugmyndir á bakvið flíkina eigi síðar en viku fyrir keppni.  Eiga það bara að vera 2 til 4 línur (10 punktaTimes New roman letur).


Mappan


Er vinnumappa hvers hóps þar sem sýnt er vinnuferli á flík, myndum af flík, hár og förðun, auk útskýringa. Hvað efni er verið að nýta? Hvaða hugmynd er á bakvið flíkina?
Dómarar styðjast við möppuna þegar þeir kjósa í úrslit. Afar mikilvægt er að sú skriflega lýsing á hönnuninni sem kemur fram í möppunni sem tengslum við útkomuna. Dómarar taka tillit til þess er þeir dæma flíkina.  Því betri sem mappan  er, því betra er fyrir dómara og þá líka keppendur.


Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir efstu fimm sætin, auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir hár, förðun og fatahönnun, meðal verðlauna er farandstytta. Einnig eru veitt aukaverðlaun fyrir vinnu á möppu.

Keppnisdagur fyrirkomulag

(yfirleitt þriðji laugardagur í nóvember)

 

Kl. 12:00          Liðin mæta á keppnisstað til undirbúnings   

Kl. 13:00          Keppnin hefst

Kl. 15:00          Keppni lýkur

Kl. 15:20          Sýning á afrakstri keppenda

Kl. 16:00          Dómnefnd dregur sig í hlé

Kl. 16:30          Úrslit kunngjörð

Kl. 17:00          Dagskrá lýkur

Á meðan liðin gera sig klár verða ýmis skemmtiatriði á sviði, m.a. tískusýningar og söngatriði frá unglingum.

Hér á heimasíðu Samfés, www.samfes.is verða ítarlegri upplýsingar að finna er nær dregur keppni, helstu dagsetningar, dagskrá og svo myndir frá keppninni þegar henni er lokið. Einnig verður á heimasíðunni matskerfi fyrir áhorfendur, þátttakendur og starfsmenn. Þetta matskerfi hjálpar okkur í að gera góðan viðburð betri, svo endilega takið þátt og leggið ykkar af mörkum í að bæta gæði Stílsins.

Hér er að finna umsóknarfom: Umsoknarfom.xls

Hér er að finna efnislýsingarform: Efnilysingaform.doc

 

Stíll er samstarfsverkefni ÍTK og Samfés.

 

 

Samfés á Facebook

facebook_logo

Skoðanakönnun

Ferðu á landsmót