Viðburðir fyrri ára

2009 - úrslit í söngkeppni Samfés

Úrslit keppninnar urðu eftirfarandi.

1. sæti. Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir úr félagsmiðstöðinni Ársel með lagið Mercy. Með henni á sviðinu voru þau Andri Már Magnason (gítar), Jón Birgir Eiríksson (hljómborð) og Auður Finnbogadóttir (bassi).

2. sæti. Elísabet Ormslev úr félagsmiðstöðinni Laugó með lagið Unbreak my heart en hún var ein á sviðinu.

3. sæti María Ólasdóttir úr félagsmðstöðinni Bólinu með lagið Inside your heaven. Hún var ein á sviðinu.

   

2008 Fréttastiklur af Landsmóti 2008

Um helgina 3. – 5. október er árlegt Landsmót Samfés haldið í Garði á Suðurnesjum. Gríðarleg þátttaka er í ár og 311 krakkar eru skráðir en samtals eru um 400 manns frá félagsmiðstöðum víðsvegar af landinu og hafa aldrei verið fleiri. Á meðal faganna sem eru í boði þetta árið eru tónlistarsmiðja, pressusmiðja, leiklistarsmiðja, danssmiðja, umræðusmiðja, íþróttasmiðja, golfsmiðja, listasmiðja, björgunarsmiðja, fatahönnun, hárgreiðsla, bakarasmiðja svo eitthvað sé nefnt. Við ræddum við nokkra krakka úr sumum af smiðjunum og spurðum þá spjörnunum úr.

 

Nánar

   

2008 Úrslit í Söngkeppni Samfés

Stefanía sigraði söngkeppnina

Stefanía Svavarsdóttir frá Félagsmiðtöðinni Bólinu í Mosfellsbæ sigraði Söngkeppni Samfés sem fór fram í Laugardaghöllinni laugardaginn 8. mars með því að syngja lagið Fever. Í öðru sæti varð Sigurbjörg Telma Sveinsdóttir frá félagsmiðstöðinni Setrinu í Hafnarfirði og í þriðja sæti varð Anton Örn Sandholt frá Félagsmiðstöðinni Ekkó í Kópavogi. Þá fékk Helga María Ragnarsdóttir frá Félagsmiðstöðinni Zelsíus í Árborg sérstök verðlaun fyrir besta frumsamda lagið.

Nánar

   

2007 Úrslit í Stíl 2007

Úrslitin í Stíl 2007

Stíll 2007 var haldinn í Smáranum laugardaginn 17. nóvember. Alls tóku 52 félagsmiðstöðvar þátt í keppninni en það er met þátttaka. Fjöldi áhorfenda mætti á svæðið og má áætla að um þúsund manns hafi verið í Smáranum þennan dag. Þétt skemmtidagskrá var frá klukkan 16-21 en þar ber að nefna Ljótu hálfvitana, Perluna, tískusýningar, leiksýningar ofl. Úrslit keppninnar urðu eftirfarandi:

Verðlaun fyrir bestu möppuna: Æskó, Siglufirði
Verðlaun fyrir hönnun: Féló, Vestmannaeyjum
Verðlaun fyrir hár: Mekka, Kópavogi
Verðlaun fyrir förðun: Mekka, Kópavogi
 
1. sæti: Mekka, Kópavogi
2. sæti: Æskó, Siglufirði
3. sæti: Igló, Kópavogi
4. sæti: Féló, Vestmannaeyjum
5. sæti: Þruman, Grindavík
 
 
   

2007 Sigurvegari í Rímnaflæði 2007

Úrslitin í Rímnaflæði

Rímnaflæði 2007 var haldið í Miðbergi s.l. föstudagskvöld. Húsfyllir var í Miðbergi en um 450 ungmenni komu til þess að sjá showið. 10 atriði voru á dagskrá og fór keppnin mjög vel fram. Úrlit urðu eftirfarandi:

1. sæti. Gunni Jr. úr Gufunesbæ
2. sæti Mc Biggi úr Miðbergi
3. sæti Ómar úr Miðbergi