Stefanía Svavarsdóttir frá Félagsmiðtöðinni Bólinu í Mosfellsbæ sigraði Söngkeppni Samfés sem fór fram í Laugardaghöllinni laugardaginn 8. mars með því að syngja lagið Fever. Í öðru sæti varð Sigurbjörg Telma Sveinsdóttir frá félagsmiðstöðinni Setrinu í Hafnarfirði og í þriðja sæti varð Anton Örn Sandholt frá Félagsmiðstöðinni Ekkó í Kópavogi. Þá fékk Helga María Ragnarsdóttir frá Félagsmiðstöðinni Zelsíus í Árborg sérstök verðlaun fyrir besta frumsamda lagið.
Það voru 30 atriði í Söngkeppni Samfés í ár frá jafnmörgum félagsmiðstöðvum frá öllu landinu. Það eru bestu atriðin úr undankeppnum sem fara fram víðsvegar um landið sem komast áfram í lokakeppnina í Laugardalshöllinn. Söngkeppnin var send út í beinni útsendingu á Rás 2.
Söngkeppnin er hluti af Samféshátíðinni sem fór fram í Laugardalshöllinni föstudaginn 8. mars og laugardaginn 9. mars. Hátíðina sóttu um 4.200 unglingar frá 95 félagsmiðstöðvum af öllu landinu sem skemmtu sér á frábæru balli á föstudagkvöldi og glæsilegri söngkeppni á laugardeginum.
