2008 Fréttastiklur af Landsmóti 2008

Um helgina 3. – 5. október er árlegt Landsmót Samfés haldið í Garði á Suðurnesjum. Gríðarleg þátttaka er í ár og 311 krakkar eru skráðir en samtals eru um 400 manns frá félagsmiðstöðum víðsvegar af landinu og hafa aldrei verið fleiri. Á meðal faganna sem eru í boði þetta árið eru tónlistarsmiðja, pressusmiðja, leiklistarsmiðja, danssmiðja, umræðusmiðja, íþróttasmiðja, golfsmiðja, listasmiðja, björgunarsmiðja, fatahönnun, hárgreiðsla, bakarasmiðja svo eitthvað sé nefnt. Við ræddum við nokkra krakka úr sumum af smiðjunum og spurðum þá spjörnunum úr.

 

Í danssmiðjunni var rætt við hana Sólveigu Ástu Einarsdóttur úr félgasmiðstöðinni Selinu á Seltjarnarnesi. Hún æfir ballett og er á námsskeiði í “street dance” og er reyndur dansari. Aðspurð segir hún að það sé mjög gaman og að aðalega séu þau að dansa við hip hop-tónlist.

 

Við ræddum við hann Kristófer Ísak Karlsson í umræðusmiðjunni. Kristófer er úr félagsmiðstöðinni Arnardal á Akranesi. Hann segir að þau séu að kynnast hvert öðru og fari í leiki en engin alvarleg málefni séu rædd nema þá byltingin á Spáni.  

 

Við litum inn í bakarasmiðjuna og byrjuðum á því að ræða við Hörpu úr félagsmiðstöðinni Igló. Við spurðum hana hvað þau hefðu verið að gera og þá sagði hún að þau hefðu horft á myndband um það hvernig á að skera út ávexti og grænmeti, og svo þurftu þau að skera út körfur úr appelsínum, rósir úr kartöflum og fleira. Henni fannst ekki mjög gaman því hún var að búast við því að fara að baka eins og nafnið gefur til kynna. Við töluðum svo við Sverri sem er yfir bökunarsmiðjunni. Hann sagði að þetta árið hefði verið breytt út af vananum og búið til skreytissýnishorn. Það var skorið út grænmeti og ávexti í staðinn fyrir að baka. Hann vissi ekki hvers vegna það var.

 

Svo var rætt við Þráinn Sigvaldason sem er framkvæmdarstjóri Samfés. Hann sagði allt hafa gengið vel hingað til og ekkert geta farið betur þótt við búum svolítið þröngt.

 

Á föstudagskvöldinu voru tveir unglingar úr hverjum landshluta kosnir í þriðja ungmennaráð Samfés. Á laugardeginum fóru þau svo í ungmennaráðssmiðju. Þar sem þau ræddu ýmis mál. Við töluðum við Sindra Benediktsson úr félagsmiðstöðinni Kjarnanum í Kópavogi og Aldísi Önnu úr félagsmiðstöðinni Ný-Ung á Egilsstöðum. Þetta verður fyrsta ár Sindra í ungmennaráði. Hann sagðist hafa lengi langað að sækja um því að félagi hans var í ungmennaráði í tvö ár og fannst mjög gaman. Hann sagði að á fundinum hefði verið rætt um ímynd unglinga og slæma umfjöllun um þá í fjölmiðlum.  Aldís var líka í ungmennaráðinu í fyrra. Hún segir að það hafi verið mjög gaman. Þau hittust á fundum, skipulögðu Samfés hátíðina, Stíl og ýmislegt fleira. Þau fóru svo til Finnlands og kynntust unglingum og félagsmiðstöðvum þar. Aðspurð segir hún að ungmennaráðið ráði ansi miklu í atburðum Samfés, en ef að það kemur upp einhver hugmynd sem er ekki raunsæ er alltaf einhver fullorðinn sem hefur hemil á þeim. Hún vill að umfjöllun um unglinga í fjölmiðlum verði betri,  ekki alltaf bara talað um það slæma.

 

Í ár var einnig boðið upp á paintball. Gríðarlega margir skráðu sig en færri komust að en vildu. Allir sem við spurðum sögðu að það væri gríðarlega gaman og það lyggi meira í paintball en bara að skjóta á andstæðinginn.

 

Á föstudagskvöldið var einnig haldið sundlaugarpartí í sundlauginni í Garði.

 

Landsmót Samfés þykir einkar vel heppnað þetta árið og aðstaðan mjög góð og flestir segja að allir fari glaði heim.

 

Texti og myndir:

Bjarki Þór Gunnarsson, Bergdís Jóna Viðarsdóttir, Andri Jamel Ásgeirsson, Gylfi Freyr Karlsson, Hjalti Vigfússon og Sigurður Óskarsson