Viðburðir fyrri ára

2006 - Alyktun afmælisþings Samfés

Ályktun afmælismálþings Samfés

Ályktun málþings Samfés, Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, haldið í tilefni af 20 ára afmæli samtakannna á Nordica Hotel í Reykjavík 9. desember 2005:

Þátttakendur á málþingi Samfés um frítímann árið 2025 vilja leggja áherslu á eftirfarandi atriði:

       

  • a)    Að lög um æskulýðsmál nr. 24/1970 verði tekin til gagngerrar endurskoðunar, í samstarfi við fagfólk á sviði frítímans, og skapaður verði lagarammi sem styður við faglegt frítímastarf á Íslandi.

     

  • b)    Að sveitarstjórnarmenn setji málefni frítímans í öndvegi í sveitarstjórnarkosningum 2006.

     

  • c)    Fjárhagslegur stuðningur hins opinbera við æskulýðs- og frítímastarf verði aukinn.

     

  • d)    Að fagmennska og menntun á sviði frítímans hljóti þá viðurkenningu sem hún á skilið, bæði hvað varðar fagkröfur í starfi sveitarfélaga sem og í kjaramálum.
   

Stíll 2006

Eftir glæsilegusta Stíl frá upphafi var það félagsmiðstöðin Friður frá Sauðárkróki sem stóð uppi sem sigurvegari á laugardaginn var. Dómarar voru sammála um valið og sáu allir þeir sem voru á staðnum að gæði Stílsins eru að verða meiri og meiri með árunum. Fyrir leikmann eins og þann sem þetta skrifar mátti ekki sjá mun á þessari keppni, sem haldin er meðal unglinga á aldrinum 13-15 ára, og keppni atvinnufólks í bransanum. Til hamingju Friður!

 

   

Samfés hátíð 2009

Plaggat - 952265 bitar Smelltu hér til að sækja
   

Rímnaflæði 2012


Rímnaflæði 2012

Rímnaflæði fer fram föstudaginn 23. nóvember í sal Hólabrekkuskóla í Breiðholti. Keppnin hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.30. Keppnin hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Á hverju ári sjáum við nýja og efnilega rappara sem sýna frábæra laga – og textasmíð. Í ár verður Rímnaflæði haldið í 13. sinn.

Skráning fer fram á meðfylgjandi skráningarblað og skal það sendast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 19. nóvember. Mikilvægt er að fylla út allt skráningarblaðið . Ásamt skráningarblaði skal skila blaði með texta lags.

Stig eru gefin fyrir innihaldsríka texta, flæði og lögin sjálf í heildina. Aðstandendur Rímnaflæðis áskilja sér rétt til að meina þátttöku eða fara fram á breytingu ef texti þykir ekki samræma reglum Rímnaflæðis.

Keppnin er einungis fyrir krakka í 8. – 10. bekk.

500 miðar eru í boði og er miðaverð 700 kr. Reglan fyrstur kemur fyrstur fær gildir. Vil ég beina því til ykkar að vera snögg að tryggja ykkur miða, því reynsla síðustu ára er sú að færri komumst að en vildu.

Miðasala fer fram í félagsmiðstöðvunum ykkar, og stendur til kl. 16.00 miðvikudags 21. nóvember.  Þegar ljóst er hversu marga miða þið þurfið sendið þið miðapöntunarformið   á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  Vinsamlegast leggið andvirði miðana inná reikning Samfés: 301-26-988, kt. 650686-1799. Ekki gleyma að setja nafn félagsmiðstöðvar sem skýringu.

Miðarnir verða tilbúnir til afhendingar í Miðbergi sama dag og Rímnaflæði fer fram.

Rímnaflæði er viðburður á vegum Samfés og lýtur sömu reglum og aðrar samkomur af þessu tagi. Þ.e starfsmaður skal fylgja bæði keppendum og áhorfendum á keppnina og verði á staðnum frá upphafi til enda. Þar með talið undirbúningur keppenda og soundcheck fyrr um daginn.  Af gefnu tilefni vill ég endurtaka og ítreka að áhorfendum er ekki heimilt að mæta á staðinn á eiginvegum heldur verða allir að koma saman, þ.e. með sinni félagsmiðstöð og starfsmanni.

Reglan um einn starfsmann með 15 unglinga gildir.

Regur um klæðaburð 

  1. Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
  2. Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
  3. Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
  4. Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum,


Reglur Rímnaflæðis

  1. Keppendur og áhorfendur verða að vera á grunnskóla aldri (8. – 10. bekk)
  2. Lög og textar eiga að vera samin af keppendum. Stuldur á takti og ítrekaður stuldur á textabrotum mun snarlækka einkunn frá dómurum.
  3. Neysla tóbaks, áfengis og vímefna er stranglega bönnuð. Keppendum og áhorfendum verður vísað út ef upp kemst um slíkt. Ölvun ógildir miðann.
  4. Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annarra fíkniefna snarklækka einkunn frá dómurum. Hægt er að vísa keppendum frá ef um gróft brot er að ræða.
  5. Eitt lag á keppenda. Hágmarks lengd atriðis 6 min. Hámarksfjöldi þátttakenda á sviði er 6 manneskjur.
  6. Skilríkjaskylda.




 

   

STÍLL

Þema Stíls árið 2012 er: FRAMTÍÐIN

Stíll 2012 verður haldinn í Hörpu laugardaginn 24. nóvember næstkomandi.

Stíll er keppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel. Keppt hefur  verið í Stíl undir formerkjum Samfés og ÍTK frá því á árinu 2000 en löng hefð hefur verið í Kópavogi fyrir sambærilegri keppni.

Markmið Stíls eru

  • Hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika.
  • Vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa þeim kost á að koma sínum hugmyndum á framfæri utan félagsmiðstöðvanna.
  • Að unglingarnir komist í kynni við fleiri sem hafa áhuga á sama sviði.


Reglur

  1. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið, skipað 2 til 4 einstaklingum (þar með talið módelið) úr 8.-10. bekk í grunnskóla.
  2. Allur sýnilegur klæðnður skal hannaður af hópnum þ.m.t. skófatnaður. Leyfilegt er að breyta gömlum skóm til samræmis við heildarhönnun.   
  3. Að klæðnaður sé innan siðferðilegra marka. Miðað skal við að a.m.k. 1/3 hluti líkamans skuli vera hulinn flík.
  4. Öll vinna keppenda við módel (hár og förðun) verður að fara fram á svæðinu, ekki er heimilt að undirbúa módelið á neinn hátt áður en að keppnin hefst, þ.m.t. neglur.
  5. Á keppnisstað verða þátttakendur að standa sjálfir skil á sinni hönnun/sköpun og utanaðkomandi aðstoð er bönnuð (svo sem starfsmenn, foreldrar eða aðrir).
  6. Teikningar og útskýringar (mappan) verða að afhendast umsjónarmönnum keppninnar áður en keppni hefst, u.þ.b. viku fyrir keppnisdag (dagsetning og afhendingarstaður verður tilkynnt sérstaklega).
  7. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðva athugi og fylgist með efniskostnaði keppnisliða og reyni að stýra því að hann sé innan skynsamlegra marka. Ágætt er að miða við að heildarkostnaður fari ekki upp fyrir 20.000 krónur á hóp. Gott er taka fram í möppu heildarkostnað við hönnunina og í hvað kostnaðurinn fer. Hér fyrir neðan er að eyðublað sem ætluð eru til að skrifa niður hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengin og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja blaðinu. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal tekið fram hvar/hver hafi gefið/lánað efnið eða hlutinn.

 

Skráning

Óskað er eftir skráningu u.þ.b. þremur vikum fyrir keppni. Í skráningu þarf að koma fram: fullt nafn á þátttakendunum fjórum og hvert þeirra er módelið, og frá hvaða félagsmiðstöð liðið kemur. Þar af leiðandi verða undankeppnir í félagsmiðstöðvunum að hafa farið fram fyrir þann tíma (gott er að miða við mánaðarmót okt/nóv).

Þátttökugjald er 5.000 kr á lið sem skal greitt við skráningu. Greiða skal þátttökugjald á reikning 301-26-988, kt. 650686-1799. Taka skal fram í skýringu hvaða félagsmiðstöð greiðir. Ef óskað er eftir reikningi fyrir þátttökugjaldi skal óska sérstaklega eftir því við framkvæmdarstjóra Samfés. Ef þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir keppnisdag mun viðkomandi lið falla úr keppni.

Til að kynnir geti gert góða grein fyrir hverri flík / hönnun á sviði, óskum við að fá efnislýsingu og hugmyndir á bakvið flíkina eigi síðar en viku fyrir keppni.  Eiga það bara að vera 2 til 4 línur (10 punktaTimes New roman letur).

Mappan er vinnumappa hvers hóps þar sem vinnuferli hönnunar er rakið frá hugmynd að lokaafurð.  Gott er að styðja mál sitt með teikningum og ljósmyndum eins myndir og af flík, hár og förðun. Aðrar útskýringar eru nauðsynlegar eins og hvaða efni er verið að nýta? Hvaða hugmynd er á bakvið flíkina? osfrv.
Dómarar styðjast við möppuna þegar þeir kjósa í úrslit. Afar mikilvægt er að sú skriflega lýsing á hönnuninni sem kemur fram í möppunni sé í tengslum við útkomuna. Dómarar taka tillit til þess er þeir dæma flíkina.  Því betri og nákvæmari sem mappan er, því betra fyrir dómara og þá líka keppendur.

Vinsamlegast athugið að mappan má ekki vera merkt á einn né annan hátt. Hvorki með nafni keppenda né nafni félagsmiðstöðvar. Þegar mappan er afhent verður hún merkt með númeri sem er hið sama og keppnisliðið fær úthlutað á keppnisdeginum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin, auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir hár, förðun og fatahönnun, meðal verðlauna er farandstytta. Einnig eru veitt aukaverðlaun fyrir vinnu á möppu.

Keppnisdagur fyrirkomulag - 

(24. nóvember)

 

Kl. 12:00          Liðin mæta á keppnisstað til undirbúnings   

                         Módel fá að að sjá svið og æfa göngu og hinir gera undirbúningsstað tilbúin

Kl. 13:00          Keppnin hefst

Kl. 15:00          Keppni lýkur

Kl. 15:20          Sýning á afrakstri keppenda

Kl. 16:00          Dómnefnd dregur sig í hlé

Kl. 16:30          Úrslit kunngjörð

Kl. 17:00          Dagskrá lýkur

Á meðan liðin gera sig klár verða ýmis skemmtiatriði á sviði frá unglingum.

Hér er að finna umsóknarfom:Smelltu hér til að sækja. 

Efnilýsingarformið skal fyllt út rafrænt með því að ýta á þennan link https://docs.google.com/spreadsheet/viewform?fromEmail=true&formkey=dG01NVpjcXdldEw4NUNHSWdfSzVPVVE6MQ

Stíll er samstarfsverkefni ÍTK og Samfés.