Raunveruleg þátttaka

ungmenna

Handbók Samfés til að sporna við sýndarsamráði ungmenna í ákvarðanatöku.


Af hverju skiptir þátttaka máli?

Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, hefur útbúið þessa handbók fyrir ráðamenn, sveitarfélög, stofnanir og aðra sem taka ákvarðanir eða móta þjónustu sem snertir ungmenni.

Markmiðið er að styðja við vandaða og raunverulega þátttöku ungmenna í ákvarðanatöku. Handbókin hjálpar lesendum að greina á milli þátttöku sem veitir raunhæft tækifæri til áhrifa og þátttöku sem verður aðeins formsatriði.

Ungmenni eiga rétt á að hafa áhrif á mál sem snerta þau. Það er þó ekki nóg að kalla eftir skoðunum þeirra. Þau þurfa að fá viðeigandi upplýsingar, nægan tíma, stuðning og skýran farveg inn í ákvarðanatökuna.

Raunveruleg þátttaka hefst áður en niðurstaðan hefur verið ákveðin. Skýrt þarf að vera hvað er opið fyrir áhrifum, hver tekur ákvörðun og hvernig sjónarmiðum ungmenna verður fylgt eftir.

Handbókin hjálpar til við að

Undirbúa þátttöku vel - Skýra tilgang, svigrúm til áhrifa, upplýsingar og ábyrgð áður en samráð hefst.

Framkvæma þátttöku af vönduðu verklagi - Skapa öruggt og aðgengilegt rými þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast.

Tryggja sýnilega eftirfylgni - Skrá framlag, meta það og segja ungmennum frá niðurstöðum og rökum.


Raunveruleg þátttaka eða sýndarsamráð?

Ekki er öll þátttaka raunveruleg. Það getur litið út fyrir að ungmenni hafi fengið að hafa áhrif þótt niðurstaðan hafi í raun þegar verið ákveðin, upplýsingar hafi verið ófullnægjandi eða engin eftirfylgni sé fyrirhuguð.

Raunveruleg þátttaka byggir á því að ungmenni komi að ferlinu nógu snemma, viti hvað þau geta haft áhrif á og fái skýr svör um hvað varð um framlag þeirra.

Raunveruleg þátttaka

Ungmenni koma að málinu áður en niðurstaðan liggur fyrir

Skýrt er hvað er opið fyrir áhrifum og hvað er þegar ákveðið

Þau fá upplýsingar, tíma og stuðning til að mynda sér skoðun

Þátttakan er aðgengileg og tekur mið af ólíkum þörfum

Sjónarmið þeirra komast til þeirra sem hafa vald til að taka ákvörðun

Framlagið er skráð og metið af alvöru

Ungmenni fá að vita hvað var ákveðið, hvað verður gert og hvers vegna

Sýndarsamráð

Ungmenni eru kölluð til þegar lítið eða ekkert er lengur opið fyrir áhrifum

Óljóst er hvaða áhrif þau geta haft

Þau fá litlar eða óskýrar upplýsingar

Aðeins fáir eða sömu hóparnir fá tækifæri til að taka þátt

Sjónarmiðin ná ekki til réttra ákvörðunaraðila

Framlagið er ekki skráð eða tengt við ákvörðunina

Engin skýr eftirfylgni eða endurgjöf fer fram

Áður en ákvörðun er tekin → samráð → mat á sjónarmiðum → ákvörðun → endurgjöf

Lundy-líkanið: Fjögur skilyrði raunverulegrar þátttöku

Það er ekki nóg að gefa ungmennum orðið. Til að þátttaka verði raunveruleg þurfa fjögur skilyrði að vera til staðar: Rými, Rödd, Áheyrn og Áhrif.

Þættirnir tengjast og fylgja eðlilegri röð. Fyrst þarf að skapa aðstæður þar sem ungmenni geta tekið þátt. Síðan þarf að styðja þau til að mynda sér skoðun og tjá hana. Þá þarf að tryggja að sjónarmiðin komist til þeirra sem bera ábyrgð á ákvörðuninni og loks að framlagið fái raunverulegt vægi.

RÝMI

Rými snýst um að skapa öruggar, aðgengilegar og inngildandi aðstæður. Ungmenni þurfa að fá boð um þátttöku nógu snemma og vita að þátttakan er valfrjáls.

Gott rými felur í sér að:

  • ólíkir hópar ungmenna fá tækifæri til að taka þátt

  • staður, tími og fyrirkomulag eru aðgengileg

  • ungmenni geta tjáð sig án ótta við neikvæð viðbrögð

  • nægur tími er gefinn til umræðu

RÖDD

Rödd snýst ekki aðeins um að fá að tala. Ungmenni þurfa skýrar upplýsingar, tíma til undirbúnings og leiðir til að tjá sig á eigin forsendum.

Góð framkvæmd felur í sér að:

  • upplýsingar eru skýrar og viðeigandi

  • ungmenni vita hvað málið snýst um

  • hægt er að tjá sig með fleiri leiðum en einni

  • stuðningur er í boði þegar þess er þörf

ÁHEYRN

Það skiptir máli hver hlustar. Sjónarmið ungmenna þurfa að berast til þeirra sem hafa ábyrgð, umboð eða vald til að bregðast við.

Góð áheyrn felur í sér að:

  • skýrt er hver tekur við sjónarmiðunum

  • ákvörðunaraðilar eru tengdir ferlinu

  • sjónarmiðin eru skráð og miðlað áfram

  • ungmenni vita hvert framlag þeirra fer

ÁHRIF

Áhrif þýða ekki að allar tillögur verði samþykktar. Þau þýða að framlag ungmenna sé metið af alvöru og tekið með í ákvörðunina þar sem það á við.

Raunveruleg áhrif felast í að:

  • sjónarmið eru skoðuð og metin

  • skráð er hvernig þau höfðu áhrif

  • útskýrt er hvað verður gert og hvað ekki

  • ungmenni fá upplýsingar um niðurstöður og rök