Fyrir fjölmiðla

Upplýsingafulltrúar Samfés

Framkvæmdarstjóri

Formaður Samfés

Ungmennaráð Samfés & fulltrúaráð Samfés

Upplýsingabeiðnir, gagnsæi og efni á vef Samfés

Cartoon of a monkey wearing sunglasses and sitting on a picnic table on a mountain with a curved smile.
  • Samfés leggur áherslu á gagnsæi og vandaða upplýsingamiðlun um starfsemi samtakanna. Óski einstaklingar, aðildarfélög, fjölmiðlar eða aðrir eftir upplýsingum um starfsemi Samfés er hægt að senda fyrirspurn á skrifstofu samtakanna með tölvupósti á samfes@samfe.is

    Samfés leitast við að svara erindum eins fljótt og unnt er og veita skýrar og áreiðanlegar upplýsingar um starfsemi, verkefni og áherslur samtakanna. Við afgreiðslu fyrirspurna er þó ávallt gætt að trúnaði, persónuvernd, samningsbundnum skuldbindingum og öðrum lögvörðum hagsmunum eftir því sem við á. Ekki er unnt að afhenda upplýsingar eða gögn ef slíkt brýtur gegn lögum, réttindum þriðja aðila eða trúnaðarskyldum sem Samfés ber að virða.

  • Samfés vill stuðla að opnum og ábyrgum stjórnarháttum. Markmið samtakanna er að upplýsingar um starfsemi þeirra séu aðgengilegar, skýrar og traustar, þannig að aðildarfélög, samstarfsaðilar, ungt fólk og almenningur geti kynnt sér starfsemi og verkefni Samfés með einföldum hætti.

    Samfés leitast við að birta á vef sínum og öðrum miðlum helstu upplýsingar um:

    • hlutverk og tilgang samtakanna,

    • verkefni, viðburði og áherslur,

    • stjórnskipan og helstu tengiliði,

    • útgefið efni, fréttir og annað kynningarefni eftir því sem við á.

  • Efni sem birt er á vef Samfés, svo sem fréttir, tilkynningar og annað kynningarefni, má almennt vitna í og deila, enda sé heimildar getið með skýrum hætti. Samfés áskilur sér þó allan rétt til efnis á vefnum nema annað sé sérstaklega tekið fram.

    Óheimilt er að breyta efni, birta það villandi eða nota það í viðskiptalegum tilgangi nema með fyrirfram fengnu leyfi frá Samfés, ef slíkt á við.

    Ef spurningar vakna um notkun efnis má hafa samband við Samfés á samfes@samfes.is

  • Merki Samfés, heiti samtakanna og annað auðkenni þeirra má ekki nota í kynningar-, auglýsinga- eða útgáfuefni án leyfis, nema um sé að ræða eðlilega umfjöllun eða tilvísun til starfsemi samtakanna. Notkun merkis Samfés skal ávallt vera í samræmi við ímynd og hagsmuni samtakanna.

    Fyrirspurnir um notkun merkis og annarra auðkenna skal senda á samfes@samfes.is

  • Ljósmyndir og annað myndefni á vef Samfés kunna að vera í eigu Samfés eða þriðja aðila. Slíkt efni má ekki endurbirta, afrita eða nýta án heimildar nema það sé sérstaklega tekið fram.

    Þar sem höfundar eða rétthafar eru tilgreindir skal ávallt virða rétt þeirra. Óski aðilar eftir að nýta ljósmyndir eða annað myndefni frá Samfés skal senda beiðni á samfes@samfes.is

  • Samfés leggur ríka áherslu á ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Nánari upplýsingar um hvernig Samfés safnar, varðveitir og vinnur persónuupplýsingar skulu koma fram í persónuverndarstefnu Samfés.

Merki Samtakanna / Logo

Black and white drawing of a kitten sitting on a turtle's shell.

Aðal merki samtakanna

Black and blue abstract illustration of two human profiles facing each other, forming a symmetrical shape with their outlines.

Logo mark Samtakanna

A webpage layout with placeholder text and a logo. The logo features the word "SAMFÉS" in bold orange and black letters, with an Iceland map silhouette above it and stylized human profiles and connection lines beneath.
Graphic design with a large black word 'LOGOMARK' on the left, an Icelandic map silhouette with blue and black stylized profiles of faces forming a circle, and a block of Icelandic text on the right side.
Text displaying 'LOGOTYPE' at the top left and 'SAMÉS' in a curved layout below, along with a block of paragraph text in Icelandic on the right side.
Close-up of a black cat with green eyes looking at the camera.

Logo Type Samtakanna