Ungmennin og samveran í fyrirrúmi á Landsmóti Samfés í Reykjanesbæ
Landsmót Samfés fór fram yfir helgina í Reykjanesbæ þar sem rúmlega 450 ungmenni tóku þátt víðsvegar af landinu. Í heildina komu yfir 80 félagsmiðstöðvar á viðburðinn og fylgdu 5-6 ungmenni hverri félagsmiðstöð.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar kom og setti Landsmótið með frábærri ræðu sinni og erum við virkilega þakklát fyrir hans aðkomu og liðleika í skipulagi. Föstudagskvöldið byrjaði á kosningu í ungmennaráð Samfés þar sem 22 pláss voru kosin til setu í 1-2 ár í alls 10 kjördæmum. Einnig sá fráfarandi ungmennaráð Samfés um að halda uppi stuðinu allt kvöldið með hinni árlegu kvöldvöku sem sló svo sannarlega í gegn.
Laugardagurinn fór í að virkja ungmennin í umræðusmiðjum og verklegum smiðjum. Allt frá því að fara í hnefaleika, hitta lögguna, föndra nælur, læra á fjármálalæsi, læra um ungmennaskipti, jafningjafræðsla Hins hússins, “speed friending” og ótal margt meira. Að auki mætti Netvís og tók spjallið við ungmennin um grevigreind, samfélagsmiðla og stafrænann raunveruleika þeirra. Markmiðið með þessum smiðjum er að ungmennin fái eitthvað haldbær úr þeim til að taka til baka í sína félagsmiðstöð og sitt sveitarfélag.
Þessa sömu helgi fór fram landsmót lúðrasveita og tóku Samfés og lúðrasveitirnar höndum saman og héldu sameiginlegt ball í Hljómahöllinni á laugardagskvöldinu þar sem Herra Hnetusmjör kom og hélt uppi stuðinu. Öll ungmennin skemmtu sér ótrúlega vel og voru ungmennum landsins til sóma.
Á sunnudeginum fór fram Landsþing Samfés. Vilhjálmur bæjarstjóri Reykjanesbæjar kom einnig og setti Landsþingið. Ungmennaráð Samfés sá alfarið um framkvæmd og utanumhald Landsþingsins þar sem þau skitpu öllum 450 ungmennunum upp í hópa, stjórnuðu umræðum og tóku saman punkta. Þemað þeirra í ár á Landsþinginu var fjölbreytileikinn. Með þessu þingi reynir ungmennaráðið að taka saman skoðun og upplifun þeirra jafningjar af öllu landinu um málefnið og framtíðarsýn þessarar kynslóðar á íslensku samfélagi. Að samantektinni lokinni mun ungmennaráðið koma til með að afhenda háttsettum ráðamönnum niðurstöður Landsþingsins með þeirri ósk að raddir þessara ungmenna fái raunverulegan farveg í stjórnsýsluhjólum okkar samfélags.
Viðburður af þessu tagi og þessari stærðargráðu verður ekki til í tómarúmi heldur krefst hann óteljandi klukkutíma í undirbúningi, skipulagi og svo í aðgerð á viðburðinum sjálfum. Starfsfólk Fjörheima á risa stórt hrós skilið fyrir aðkomu sína að þessum viðburði og standa sem stærsta og sterkasta stoðin í þeirri staðreynd að Landsmótið fór eins vel fram og það gerði. Liðleiki starfsfólksins, útsjónarsemin, þrautsegjan og seiglan var áberandi í starfi þeirra þessa helgi. Það er á viðburði sem þessum þar sem maður sér eldmóð starfsfólk fyrir starfinu sem þau vinna og það sannarlega skein í gegn hjá Fjörheima liðinu. Reykjanesbær er virkilega heppið með að hafa landslið félagsmiðstöðvarstarfsmanna innan sinna banda. Staðreynd sem styður þetta hrós er sú að þó nokkrir starfsmenn, hver með áratuga reynslu, hafa skilað hrósum til okkar að þetta hafi verið best skipulagða landsmót sem þau hafa mætt á.
Við viljum þakka Reykjanesbæ kærlega fyrir að hafa boðið Samfés sveitarfélagið sitt og sinn starfskraft fram til þess að láta þennan viðburð verða að veruleika. Holtaskóli, Myllubakkaskóli og sundlaugin voru nýtt til fulls alla helgina og er það ekki á hverjum degi sem maður fær eins flotta aðstöðu og raun bar vitni þegar við höldum Landsmót Samfés víðsvegar á landinu.
Að lokum langar mig að koma á framfæri hrósi til Reykjanesbæjar sem kemur utan landsteina. Við vorum með hóp af Írskum ungmennum á landsmótinu (sem Fjörheimar hýstu og sáu um að stórum hluta ofan á allt annað) og var ein þeirra í hjólastól. Í umræðu á Landsþinginu á sunnudaginn tók hún til tals og tjáði hópnum að hún hafi aldrei á ævi sinni upplifað sig jafn velkomna og jafn stóran part af samfélagi og umhverfi og hún gerði þessa helgi. Ekki einungis vegna þess hve tillitssöm ungmennin voru heldur vegna þess hve hún upplifði allt umhverfið skipulagt að sínum þörfum. Hún komst allra sinna leiða án vandræða, gat tekið jafn virkan þátt og jafningjar hennar í helginni og fór meira að segja í fyrsta skiptið á sinni ævi í sund, sem var upplifun sem mun fylgja henni alla ævi. Aðgengismál í Reykjanesbæ fá 10 í einkun af hennar hálfu.
