Landsmót Samfés í Reykjanesbæ 2026

Black and white outline of a circular badge with the words 'LANDSCAPE SAMFŐES' and 'SEAL 19' visible on it.

Ert þú ungmenni á landsmótinu og vantar upplýsingar?

UNGMENNARÁÐ SAMFÉS

〰️

UNGMENNARÁÐ SAMFÉS 〰️

Vilt þú koma í ungmennaráð Samfés?

Hvað er ungmennaráð Samfés?

Ungmennaráð Samfés er stærsta lýðræðislega kjörna ungmennaráð landsins og veitir ungmennum tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. Ráðið er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13–16 ára til að taka þátt í ákvarðanatöku, móta stefnu og koma hugmyndum sínum í framkvæmd.

Á hverju ári er kosið í ráðið á Landsmóti Samfés, þar sem fulltrúar alls staðar að af landinu bjóða sig fram. Alls sitja 27 ungmenni í ráðinu sem fundar reglulega, tekur þátt í verkefnum Samfés og kemur að skipulagningu stórviðburða á borð við Danskeppni Samfés, Stíl og SamFestinginn.

Ungmennaráðið er stór partur af samtökum Samfés og gegnir lykilhlutverki í starfi samtakanna. Ráðið á fulltrúa með atkvæðisrétt á stjórnarfundum Samfés, er ráðgefandi í ákvarðanatöku og tekur þátt í að móta stefnu samtakanna. Þau eru rödd ungs fólks innan Samfés, en einnig út á við – ekki síst þegar ráðuneyti, sveitarfélög og aðrir hagaðilar óska eftir sjónarmiðum þeirra í málefnum sem varða ungt fólk.

Ráðið heldur ráðið gistifundi yfir helgi, þar sem meðlimir funda, taka þátt í vinnuhópum og njóta samveru. Allur ferðakostnaður, matur og gisting er greiddur af Samfés, sem tryggir að enginn þurfi að sitja eftir vegna fjarlægðar eða kostnaðar.

Markmiðið er skýrt: að efla lýðræðislega þátttöku, tryggja jafnræði og veita ungmennum vettvang til að hafa áhrif.

Hvernig kemst þú inn?

Langar þig í ungmennaráð Samfés? Ef þú ert 13–16 ára og tekur þátt í starfi félagsmiðstöðvar sem er aðili að Samfés getur þú boðið þig fram á Landsmóti Samfés. Þar fer fram kosning í ráðið. Ræddu við starfsfólkið í félagsmiðstöðinni þinni um þátttöku og framboð. Í ungmennaráðinu færðu tækifæri til að hafa áhrif, koma hugmyndum þínum á framfæri og taka þátt í að skipuleggja viðburði Samfés!

Crowd of young people dancing and raising hands at a lively event or party with stage and colorful decorations in the background.

Matseðill

Dagskráin

Starfsmaður?