Back to All Events

Rímnaflæði

Rímnaflæði – rappkeppni unga fólksins

Rímnaflæði er rappkeppni þar sem ungt fólk fær tækifæri til að flytja eigin texta, sýna hæfileika sína og öðlast reynslu af því að koma fram á sviði. Keppnin var fyrst haldin í Miðbergi árið 1999 og hefur verið stökkpallur fyrir efnilega rappara úr félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu. Meðal þeirra sem hafa tekið þátt er Emmsjé Gauti.

Nýjung í ár – tvær keppnir!

Í ár verður Rímnaflæði tvískipt:

  • Rímnaflæði Junior, fyrir 10–12 ára, fer fram fyrri hluta dags.

  • Rímnaflæði, fyrir ungmenni í 8.–10. bekk, fer fram um kvöldið.

Leynigestur kemur fram í dómarahléi og heldur uppi stemningunni á meðan beðið er eftir úrslitum!

Þátttaka og textar

Keppendur flytja texta sem þeir hafa samið sjálfir, en lög og taktar þurfa ekki að vera frumsamin. Textar mega ekki innihalda hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu eða jákvæða umfjöllun um neyslu áfengis og annarra fíkniefna. Gróf brot geta leitt til brottvísunar úr keppni.

Skráning og aðgangur

  • Skráning hefst: 26.10.26

  • Aðgangseyrir: 1000 kr.

Félagsmiðstöðvar þurfa að sækja um miða fyrirfram og auglýsa viðburðinn fyrir sínu unga fólki. Sótt er um miða hjá Samfés

Previous
Previous
October 19

Félagsmiðstöðva og ungmennahúsa vikan

Next
Next
January 22

Samfés-Con