Starfsdagar Samfés 2026 – Fagfólk og forvarnarstarf

Fagfólk á vettvangi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa gegnir lykilhlutverki í forvarnarstarfi

Starfsdagar Samfés fóru fram 9.-10. september að Varmalandi, þar sem um 150 starfsfólk félagsmiðstöðva og ungmennahúsa kom saman víðsvegar að af landinu. Starfsdagar Samfés eru mikilvægur fræðslu- og símenntunarviðburður starfsfólks á vettvangi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa. Þessi árlegi viðburður er vettvangur fyrir fagfólk til að miðla reynslu og ræða faglegt og skipulagt starf með ungu fólki. Samhliða undirbúningi starfsdagana hefur Samfés unnið að nýrri heimasíðu. Í ár nýttum við hana til að halda utan um skráningar og allar upplýsingar um viðburðinn, svo þátttakendur gætu nálgast það sem þeir þurftu á einum stað.

Fræðsla sem tengist starfinu á vettvangi

Dagskráin var fjölbreytt með málstofum og fyrirlestrum sem tengdust daglegu starfi með börnum og ungmennum. Meðal viðfangsefna voru veðmál ungmenna, ungmennastefna Íslands og börn og netmiðlar þar sem áhersla var lögð á þróun barna og ungmenna í stafrænum heimi og þær breytingar sem samfélagsmiðlar og aukin þátttaka þeirra á netinu hafa haft í för með sér fyrir starf og starfsumhverfi félagsmiðstöðva. Mikilvægur hluti starfsdagana er samtal starfsfólks þvert á félagsmiðstöðvar, ungmennahús og sveitarfélög. Þar gefst starfsfólki tækifæri til að bera saman reynslu, ræða þau málefni sem brenna á fólki og deila aðferðum sem hafa nýst í starfinu með ungu fólki.

Pallborðsumræður voru nýjung á Starfsdögum Samfés í ár. Þar kom saman fagfólk frá ólíkum sveitarfélögum til að ræða starfið á vettvangi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa. Í pallborðinu sátu Gissur, verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála á Seltjarnarnesi, Óðinn Lefever, forstöðumaður Zion í Múlaþingi, Eygló, deildarstjóri frístundamála í Fjarðabyggð, Hera, deildarstjóri frístundasviðs í Dalvíkurbyggð, og Guðrún, forstöðumaður Bólsins í Mosfellsbæ.

Það var fróðlegt að heyra ólík sjónarmið fólks sem starfar við mismunandi aðstæður víðsvegar um landið. Pallborðsumræðurnar gáfu þátttakendum tækifæri til að kynnast reynslu annarra og fá innsýn í starfið í öðrum sveitarfélögum. Þessi miðlun reynslu er mikilvægur hluti af Starfsdögum Samfés og þeirri fræðslu sem viðburðurinn býður upp á.

Ein helsta ástæðan fyrir því að við höldum starfsdagana er að skapa vettvang þar sem starfsfólk getur hlustað á reynslu annarra og rætt sameiginlegar áskoranir. Þannig byggjum við upp bakland, ekki síst fyrir þau sem starfa ein eða í fámennum teymum víðs vegar um landið. Þá ætti enginn þarf að finna upp hjólið í hvert sinn sem eitthvað kemur upp í starfinu.

Samtal sem heldur áfram

Það var gott að hitta starfsfólkið og fá innsýn í það sem er að gerast á vettvanginum. Við vonum að samtalið á starfsdögunum verði til þess að fólk eigi auðveldara með að hafa samband þegar það þarf stuðning í sínu starfi.

Við þökkum starfsdaganefndinni fyrir vinnuna við viðburðinn og öllum sem tóku þátt í Starfsdögum Samfés fyrir samveruna.


Next
Next

Yfirlýsing Samfés og Fagfrí varðandi skipulagsbreytingar borgarstjórnar Reykjavíkur