Yfirlýsing Samfés og Fagfrí varðandi skipulagsbreytingar borgarstjórnar Reykjavíkur

Yfirlýsing Samfés og Fagfrí varðandi skipulagsbreytingar borgarstjórnar Reykjavíkur 

Samfés, landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, og Fagfrí, landssamtök um fagþróun frístundaheimila, fordæma aðför borgarstjórnar Reykjavíkurborgar að faglegum grundvelli félagsmiðstöðva og frístundaheimila í borginni. Uppsagnir á lykilstjórnendum með áratuga reynslu í stoðþjónustu við frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar í borginni er gríðarlegt högg fyrir stjórnendur á vettvangi og málaflokkinn í heild sinni. Ákvörðun borgarstjórnar að leggja niður frístundamiðstöðvarnar gerir lítið úr yfir 25 árum af uppbyggingu og þróun frístundastarfs sem litið hefur verið til sem fyrirmyndarstarfs um allt land, sem og erlendis. Þessar breytingar færa óhjákvæmilega stoðþjónustu við frístundaheimili og félagsmiðstöðvar fjær vettvangi. Ekki er hægt að sjá að þessi breyting bæti þjónustu né styrki fagstarf heldur þvert á móti gerir hún stjórnendum frístundaheimila og félagsmiðstöðva erfiðara fyrir að sækja bæði faglegt bakland og stuðning í sínu starfi. 

Samtökin lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu frístundaheimila og félagsmiðstöðva sem fyrsta stigs þjónustuveitendur í farsældarlögunum. Sú einstaklingsmiðaða þjónusta sem börn og fjölskyldur fengu áður frá skóla- og frístundasviði er nú færð á Velferðarsvið. Með því lengjast allar boðleiðir fyrir fagfólk í frístundaþjónustu. 

Frístundamiðstöðvarnar hafa staðið fyrir fjölbreyttum verkefnum sem hvergi er minnst á í tillögu borgarstjórnar. Starf fyrir eldri ungmenni, 16+ starf Miðbergs og Hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar, eiga sér bakland í starfsemi frístundamiðstöðvanna. Reykjavíkurráð ungmenna sækir fulltrúa sína til ungmennaráða frístundamiðstöðvanna. Hver framtíð þessara verkefna er með öllu óljós eftir breytingarnar. 

Samtökin lýsa yfir miklum vonbrigðum með skort á samráði við sérfræðinga á vettvangi félagsmiðstöðva, frístundaheimila og frístundamiðstöðvar við þessar stórtæku breytingar og hafa verulegar áhyggjur af afleiðingum þeirra fyrir viðkvæma hópa barna og ungmenna. Sá hópur sem hefur treyst á örugga höfn í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum borgarinnar getur enn sótt starfið. Eftir stendur sú spurning hvort starfsfólk hafi möguleika á að sinna sama metnaðarfullu fagstarfi fyrir börnin og fjölskyldurnar í hverfunum án þess baklands sem hvarf við þessar breytingar? 

Stjórn Samfés & stjórn Fagfrí 


Next
Next

Hallfríður Helga sigraði Söngkeppni Samfés 2026