Hallfríður Helga sigraði Söngkeppni Samfés 2026

Laugardaginn 9. maí fór Söngkeppni Samfés 2026 fram í Laugardalshöll. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á RÚV og var hluti af viðburðarhelgi Samfés.

Söngkeppni Samfés er vettvangur fyrir ungt tónlistarfólk úr félagsmiðstöðvum landsins. Þar fá ungmenni tækifæri til að koma fram á stóru sviði, taka þátt í faglegri umgjörð og upplifa það ferli sem fylgir stærri sviðsviðburði, meðal annars hljóðprufur, ljós, sviðsframkomu, förðun og beina útsendingu.

Í ár tóku 25 atriði þátt í keppninni. Atriðin komu frá félagsmiðstöðvum víðs vegar að af landinu og sýndu vel hversu fjölbreytt og öflugt tónlistarstarf fer fram innan félagsmiðstöðvanna.

Sigurvegari Söngkeppni Samfés 2026 var Hallfríður Helga Arnórsdóttir úr Þróttheimum.

Úrslit keppninnar voru:

1. sæti: Hallfríður Helga Arnórsdóttir – Þróttheimar

2. sæti: Þórdís Anna Freysteinsdóttir – Tvisturinn

3. sæti: Gunnlaugur Sturla Olsen – Fjörheimar

Kynnar keppninnar voru Hafsteinn og Hildur. Dómnefndina skipuðu Birgir Steinn, Júlí Heiðar og Díza.

Samstarf Samfés og RÚV var mikilvægur hluti af framkvæmdinni og gaf keppninni aukinn sýnileika. Bein útsending gerir fleirum kleift að fylgjast með keppninni og styður við það markmið Samfés að skapa ungmennum vettvang þar sem þau fá að njóta sín.

Söngkeppni Samfés er ætluð ungmennum á aldrinum 13–16 ára og fer fram í samstarfi við félagsmiðstöðvar um allt land. Starfsfólk félagsmiðstöðva styður þátttakendur í gegnum ferlið, allt frá undirbúningi og æfingum til lokakeppninnar sjálfrar.

Samfés óskar öllum þátttakendum innilega til hamingju með þátttökuna og þakkar félagsmiðstöðvum, starfsfólki, samstarfsaðilum og öllum þeim sem komu að framkvæmd keppninnar.

Next
Next

Vettvangsferð Samfés til Kaupmannahafnar