Vettvangsferð Samfés til Kaupmannahafnar

Samfés fór nýverið í vettvangsferð til Kaupmannahafnar með hóp starfsfólks úr félagsmiðstöðvum, ungmennahúsum og sértæku starfi víðsvegar að af landinu. Alls tóku 32 einstaklingar þátt í ferðinni og var hún styrkt af Erasmus+. Markmið ferðarinnar var að efla faglegt samtal, kynnast dönsku æskulýðsstarfi og sækja innblástur í verkefni sem tengjast ungmennalýðræði, þátttöku ungs fólks, forvörnum og félagslegri virkni. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og gaf þátttakendum tækifæri til að skoða ólíkar nálganir í starfi með ungu fólki.

Hópurinn fékk kynningu frá Ungdomsringen, www.ungdomsringen.dk , sem eru systursamtök Samfés í Danmörku, og kynntist meðal annars verkefnunum Sexualisterne og Friday Night at the Club. Sexualisterne er jafningjafræðsla þar sem ungt fólk fær fræðslu og þjálfun til að skapa samtal við jafnaldra sína um kynheilbrigði, líkama, tilfinningar, mörk, kyn og samskipti í öruggu og fordómalausu rými. Friday Night at the Club er verkefni sem byggir að stórum hluta á fyrirmynd íslenskra félagsmiðstöðva og leggur áherslu á að skapa öruggt og aðgengilegt félagslegt rými fyrir ungt fólk á föstudagskvöldum. Það var sérstaklega áhugavert fyrir hópinn að sjá hvernig reynsla og starfsaðferðir úr íslensku félagsmiðstöðvastarfi hafa nýst sem innblástur í dönsku samhengi. Kynningin fór fram í Democracy House.

Þátttakendur fengu einnig tækifæri til að sjá árlegan viðburð Ungdomsringen í Tivoli, þar sem ungt fólk getur sótt um að koma fram og syngja á stóra sviðinu. Viðburðurinn var skemmtilega líkur Söngkeppni Samfés sem fram fór 9. maí síðastliðinn. Í ferðinni heimsótti hópurinn einnig Vesterbro félagsmiðstöð og fékk þar innsýn í daglegt starf, aðstöðu og áherslur í dönsku félagsmiðstöðvastarfi.

Rúsínan í pylsu endanum var heimsókn á Ungdomsøen, eða Ungmennaeyjuna, sem er staðsett rétt utan við Kaupmannahöfn. Ungdomsøen er fyrrum hervirki, Middelgrundsfortet, sem hefur verið umbreytt í vettvang fyrir ungt fólk, samfélagsuppbyggingu og ungmennalýðræði. Eyjan er í dag nýtt sem staður þar sem ungt fólk getur komið saman, þróað hugmyndir, tekið þátt í verkefnum og haft áhrif á samfélagið með virkum hætti.

Heimsóknin vakti mikla athygli hópsins og sýndi með skýrum hætti hvaða möguleikar skapast þegar sveitarfélög og samfélagið gefa ungu fólki rými til að skapa, þróa og móta hugmyndir á eigin forsendum. Við hvetjum öll til að skoða heimasíðu Ungdomsøen og kynna sér möguleikana á að heimsækja eyjuna, hvort sem er með ungmennahópum eða í vettvangsferðum: www.ungdomsoen.dk 

Ferðir einsog þessar eru mikilvægar því þær gefa starfsfólki í frítímastarfi tækifæri til að læra hvert af öðru, bæði innanlands og í alþjóðlegu samhengi. Þátttakendur komu heim með nýjar hugmyndir, aukið tengslanet og innblástur sem nýtist í áframhaldandi þróun félagsmiðstöðva, ungmennahúsa og sértæks starfs á Íslandi.

Samfés þakkar öllum þátttakendum fyrir góða samveru í ferðinni. Þá færum við samstarfsaðilum okkar í Danmörku bestu þakkir fyrir hlýjar móttökur og gagnlegar kynningar.

Ferðin var styrkt af Erasmus+ og er hluti af aðild Samfés að alþjóðlegu samstarfi sem styður við fagþróun, þekkingarskipti og aukin gæði í starfi með ungu fólki.

Next
Next

SamFest26