SamFest26

SamFest 2026 fór fram í Laugardalshöll föstudagskvöldið 8. maí. Á viðburðinn mættu um 4.500 ungmenni úr 104 félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu. Viðburðurinn er tóbaks-, áfengis- og vímuefnalaus og er skipulagður með öryggi og skemmtun ungmenna í forgrunni. Ungmennin koma og fara með sínum félagsmiðstöðvum í rútu á viðburðin.

Kvöldið gekk vel og framkvæmdin var í góðu jafnvægi miðað við umfang viðburðarins. Ungmennin voru til fyrirmyndar og starfsfólk félagsmiðstöðva sinnti fjölbreyttum verkefnum í tengslum við gæslu, utanumhald og stuðning við hópana sína. Í ár var tekið upp nýtt rútuplan. Samfés fékk afnotaleyfi af Engjavegi til að bæta aðkomu rúta að Laugardalshöll og draga úr álagi á Suðurlandsbraut. Umferðarlögreglan aðstoðaði við framkvæmdina. Fyrirkomulagið gekk vel og verður nýtt aftur að ári.

Ein af nýjungum þetta árið var Litla sviðið í anddyri Laugardalshallar. Þar gátu ungmenni komið fram og spilað á meðan á viðburðinum stóð. Ungir tæknimenn sáu um tæknilega framkvæmd Litla sviðsins. Verkefnið gaf þeim tækifæri til að taka þátt í viðburðinum með öðrum hætti en sem gestir á ballinu. Þau komu að uppsetningu og framkvæmd sviðsins og unnu verkefni tengd tækni, hljóði og viðburðarhaldi. Okkur finnst mikilvægt að á viðburði eins og SamFest séu ólík tækifæri fyrir öll ungmenni til þátttöku.

Í ár fórum við einnig samstarf við Bæjarins Beztu pylsur. Þau voru með pylsuvagn á svæðinu, seldu pylsur og buðu upp á lukkuhjól fyrir ungmennin. Á stóra sviðinu komu fram Tónhylur, Alaska1867, Páll Óskar, Auddi og Steindi, DJ Ragga Holm og DJ Dóra Júlía. Einnig komu sex ungir tónlistarmenn fram á stóra sviðinu. Samfés leggur áherslu á að ungmenni fái líka tækifæri til að koma fram á svona stóru sviði.

Öryggi og velferð ungmenna eru lykilþættir í undirbúningi SamFest. Á viðburðinum voru um 450 starfsmenn sem sinntu gæslu, utanumhaldi og stuðningi við ungmennin. Starfsfólk félagsmiðstöðva gegnir þar sérstöku hlutverki, enda eru þau sérfræðingar í starfi með ungmennum. Þau þekkja hópana sína, hafa reynslu af því að vinna með ólíkum þörfum ungmenna og kunna að bregðast við aðstæðum af yfirvegun og fagmennsku.

Öll ungmenni sem mættu á SamFest höfðu áður setið Sjúkást-fræðslu Stígamóta, sem fjallar meðal annars um samskipti, virðingu og mörk. Sú fræðsla, ásamt skýru skipulagi og viðveru starfsfólks félagsmiðstöðva, er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að halda viðburð af þessari stærð með öruggum hætti. Á SamFest sést vel hversu mikilvæg fagþekking félagsmiðstöðvastarfs er, bæði í undirbúningi, framkvæmd og stuðningi við ungmennin á meðan viðburðinum stendur.

Samfés vill þakka starfsfólki Laugardalshallar fyrir samstarfið og aðstoð við framkvæmd viðburðarins. Einnig fá starfsfólk Luxor, Hörður sviðsstjóri og Jóhannes tónlistarstjóri þakkir fyrir sitt framlag. Samfés þakkar einnig hjúkrunarfræðingunum fjórum sem voru á staðnum, samfélagslögreglunni, slökkviliðinu og starfsfólki Reykjavíkurborgar fyrir samstarfið.

SamFest 2026 sýndi umfang viðburðarins og mikilvægi góðs undirbúnings. Að halda viðburð fyrir um 4.500 ungmenni úr 104 félagsmiðstöðvum krefst skipulags, samstarfs og skýrra verkferla. Samfés þakkar ungmennunum sem mættu á SamFest 2026, starfsfólki félagsmiðstöðva og öllum sem komu að framkvæmd viðburðarins.

Next
Next

Vettvangsferð Norðurlands eystra á vegum Samfés