Vettvangsferð Norðurlands eystra á vegum Samfés
Félagsmiðstöðvar af Norðurlandi eystra fóru í Danmerkurferð á dögunum á vegum Samfés styrkt af Erasmus+ aðild samtakanna.
Þessar félagsmiðstöðvar hafa verið að vinna að auknu samstarfi sín á milli m.a. með sameiginlegu viðburðahaldi. Tilgangur ferðarinnar til Danmerkur er annars vegar til að treysta stoðir samstarfsins enn frekar og kynna sér starfsemi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa í Danmörku með hagsmuni þátttakenda í starfinu í huga.
Á miðvikudaginn heimsótti hópurinn risastóra félagsmiðstöð á Vesterbro í Kaupmannahöfn þar sem 1000 börn í 4. - 7. bekk hafa aðstöðu og greiða sérstaklega fyrir hana og um 400 unglingar sömuleiðis.
Á fimmtudag var förinni heitið til Hilleröd þar sem félagsmiðstöð var skoðuð og fundur tekinn með stjórnendum. Á föstudag fór hópurinn til Nyköbing á Falstri þar sem fundað var með stjórnendum félagsmiðstöðva og ungmennastarfs.
Hópurinn kemur heim reynslunni ríkari og uppfullur af góðum hugmyndum til að efla samstarfið milli félagsmiðstöðvanna og stjórnenda þeirra.
