Aðalfundur 2026
Aðalfundur á hótel kea akureyri 2026
Aðalfundur Samfés, landssamtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, fór fram á Akureyri dagana 25.–26. mars síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur en um 120 starfsfólk af öllu landinu komu saman á Hótel Kea til að fylgja eftir mikilvægum hagsmunamálum og móta framtíð samtakanna.
Eitt stærsta mál fundarins var sameiginleg áskorun aðildarfélaga til stjórnvalda um mikilvægi þess að beita inngildandi orðalagi í öllu starfi og útgefnu efni. Áskorunin var samþykkt einróma, en með henni vilja samtökin stuðla að aukinni virðingu og jafnrétti fyrir öll börn og ungmenni á Íslandi. Hægt er að sjá áskorunina í heild hér fyrir neðan.
Samtökin fögnuðu sömuleiðis vexti sínum á fundinum en þrjú ný aðildarfélög voru formlega samþykkt: félagsmiðstöðin Lundur á Akureyri, ásamt ungmennahúsunum Torginu í Garðabæ og Miðbergi 16+ í Breiðholti. Samhliða þessum vexti var samþykkt mikilvæg breyting á skipulagi ungmennaráðs Samfés. Kjördæmum ráðsins var fjölgað úr níu í tíu og fulltrúum til tveggja ára úr 27 í 30, en breytingin er gerð til að mæta fjölgun aðildarfélaga, sérstaklega á svæði Kragans og í Reykjanesbæ. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, sem sýnir ríkan vilja til að tryggja öllum ungmennum landsins sterka rödd innan samtakanna.
Auk þess að fjölga aðildarfélögum var ný stjórn kjörin til að leiða starfið áfram. Mikil ánægja var með störf sitjandi stjórnar og var Valgeir úr Miðbergi endurkjörinn sem formaður samtakanna til næstu tveggja ára. Í aðalstjórn með honum voru kjörin þau Árni úr Nýjung á Egilstöðum, Þórarinn úr Zero á Flúðum og Tómas úr Klakanum í Garðabæ, en þeir sátu allir í fráfarandi stjórn. Þeir skipa aðalstjórn ásamt Lindu frá Undirheimum á Akureyri, Dóru frá Afdrepi á Vesturlandi og Elísabetu gjaldkera frá Ozon á Vesturlandi, sem sitja sitt annað ár. Er óhætt að segja að stjórnin sé sannkölluð landsbyggðarstjórn að þessu sinni.
Varastjórn Samfés skipa nú fimm öflugar konur í eftirfarandi röð: Hildur úr Jemen í Kópavogi, Margrét úr Hrauninu í Hafnarfirði, Máney úr Óðal í Borgarbyggð, Sandra úr Klettinum í Hafnarfirði og Kristín úr Holtinu í Reykjavík.
Undir liðnum önnur mál sköpuðust líflegar og mikilvægar umræður um kjarnastarfsemi samtakanna. Meðal þess sem starfsfólk ræddi var framtíð Danskeppni Samfés, hvernig best sé að standa að vali á tónlistarmönnum á stórviðburði og hvernig megi tryggja hagstætt miðaverð á SamFest svo hátíðin sé áfram aðgengileg öllu ungu fólki. Aðalfundurinn á Akureyri sýndi enn og aftur hve mikilvægur þessi samráðsvettvangur er fyrir fagfólk í félagsmiðstöðva- og ungmennahúsastarfi og að Samfés stendur traustum fótum sem leiðandi afl í málefnum ungs fólks á Íslandi.
Samfés er ekkert án sinna aðildarfélaga; það eru starfsfólkið og ungmennin í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum landsins sem eru hjarta samtakanna. Ekkert gerist án þeirra krafts og framlags. Að geta komið saman, tengst öðrum á vettvangnum, miðlað reynslu og styrkt faglegt tengslanet er ómissandi þáttur í að efla starf félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi.
