Stíll 2026

Hönnunarkeppnin Stíll fór fram laugardaginn 14. mars í íþróttahúsinu Fagralundi í Kópavogi. Stíll er hönnunarkeppni fyrir ungmenni í 8.–10. bekk grunnskóla og hefur um árabil verið ein af föstum stoðum viðburðastarfs Samfés á sviði skapandi tómstundastarfs.

Í aðdraganda keppninnar vinna liðin að heildarhönnun sem samanstendur af fatnaði, hári og förðun. Á keppnisdegi er hönnunin svo kynnt á sviði þar sem módelið sýnir lokaafurðina. Allur sýnilegur klæðnaður þarf að vera hannaður af keppnisliðinu sjálfu og undirbúningur módels fer fram á afmörkuðu keppnissvæði á staðnum.

Þema keppninnar í ár var „Á tímum Viktoríu“ (Victorian era) og tókst keppendum að túlka tímabilið á fjölbreyttan og skapandi hátt. Á sviðinu mátti sjá áhrif frá klassískum fatnaði Viktoríutímans, svo sem blúndum, korsettum, dramatískum sniðum og glæsilegum smáatriðum, sem keppendur útfærðu á sinn eigin og nútímalegan hátt.

Mikilvægur hluti verkefnisins er einnig hönnunarmappan, þar sem keppendur skrásetja og sýna vinnuferlið sitt – frá fyrstu hugmynd að lokaafurð. Dómnefnd metur bæði sviðssýninguna og þau gögn sem fram koma í hönnunarmöppunni.

Stemningin í Fagralundi var frábær og greinilegt að mikil vinna, hugmyndaflug og sköpunarkraftur lá að baki atriðum keppenda. Ungmenni sýndu glæsilegar og fjölbreyttar útfærslur á þema ársins og var keppnin bæði litrík og eftirminnileg.

Verðlaunahafar Stíls 2026:

🥇 1. sæti – Féló
🥈 2. sæti – Aldan
🥉 3. sæti – Zion

👱‍♀️ Hár - Jemen
💄 Förðun - Pegasus / Molinn
📒 Hönnunarmappa - Selið

Samfés óskar öllum keppendum hjartanlega til hamingju með frábæra þátttöku og þakkar félagsmiðstöðvum, starfsfólki og öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd keppninnar fyrir vel heppnaðan og skapandi viðburð. ✨

Next
Next

Danskeppni Samfés 2026