Danskeppni Samfés 2026

Dansgleði og frábær stemning á Danskeppni Samfés!

Danskeppni Samfés fór fram föstudaginn 6. febrúar í félagsmiðstöðinni Garðalundi og tókst einstaklega vel. Mikil stemning ríkti í salnum og greinilegt var að keppendur höfðu lagt mikla vinnu og metnað í atriðin sín.

Keppt var í einstaklings- og hópakeppni í aldurshópunum 10–12 ára og 13–16 ára. Atriðin voru fjölbreytt, skapandi og kraftmikil og gaman var að sjá hversu mikla dansgleði og hæfileika ungmennin sýndu á sviðinu. Dómarar keppninnar voru Baldvin, Inga María og Eydís Gauja, sem áttu ekki auðvelt verk fyrir höndum við að velja sigurvegara.

Sigurvegarar keppninnar voru eftirfarandi:

10–12 ára – einstaklingskeppni
🥇 - Elísabet Lea – Ásinn

🥈 - Myrra – Vitinn

🥉 - Bella – Vitinn

10–12 ára – hópakeppni
🥇 - X-12 – Arnardalur

🥈 - Two jerks – Hraunið

🥉 - Dance girls – Ekkó

13–16 ára – einstaklingskeppni
🥇 - Elena Bilic – Pegasus

🥈 - Sunneva – Fellið

🥉 - Guðrún Telma – Mosinn

13–16 ára – hópakeppni
🥇 - Dancing Queeeens – Setrið og Ásinn

🥈 - Spell on you – Zelsíus

🥉 - Katseye aðdáendur – Afdrep

Samfés þakkar öllum keppendum, starfsfólki Garðalunds og þeim sem komu að skipulagningu kærlega fyrir frábæran dag og óskar sigurvegurum innilega til hamingju. Danskeppnin sýndi enn og aftur hversu öflugt og lifandi dans- og menningarstarf er í félagsmiðstöðvum landsins.

Next
Next

Samfés-Con 2026