Vettvangsferð Samfés til Kaupmannahafnar
Samfés fór í vettvangsferð til Kaupmannahafnar með 32 þátttakendum úr félagsmiðstöðvum, ungmennahúsum og sértæku starfi. Ferðin var styrkt af Erasmus+ og gaf þátttakendum tækifæri til að kynnast dönsku æskulýðsstarfi, sækja innblástur og efla faglegt tengslanet.
