Dagana 25.–27. september fer Hinsegin landsmót Samfés fram á Reykjum í Hrútafirði. Skráning á viðburðinn hefst 17. september.
Hinsegin landsmót Samfés er vettvangur fyrir hinsegin ungmenni á aldrinum 13–16 ára þar sem þau fá tækifæri til að hittast, mynda tengsl, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og upplifa öruggt og styðjandi umhverfi með jafnöldrum sínum.
Markmið landsmótsins er að skapa rými þar sem ungmenni geta verið þau sjálf, deilt reynslu, tekið virkan þátt og styrkt félagsleg tengsl. Áhersla verður lögð á hópefli, fræðslu, skemmtun, samtal og þátttöku ungmenna í málefnum sem skipta þau máli.
Viðburðurinn er mikilvægur liður í því að styðja við hinsegin starf innan félagsmiðstöðva og ungmennahúsa um land allt. Með landsmótinu gefst ungmennum tækifæri til að spegla sig í öðrum, byggja upp sjálfstraust og finna styrk í samfélagi sem fagnar fjölbreytileika, virðingu og samkennd.
Hinsegin landsmót Samfés er hluti af því markmiði samtakanna að skapa aðgengileg, örugg og valdeflandi rými fyrir öll ungmenni, óháð bakgrunni, kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu.
Nánari upplýsingar um dagskrá, skráningu og þátttöku verða sendar til aðildarfélaga Samfés.
