Back to All Events

Starfsdagar Samfés


Starfsdagar Samfés fara fram dagana 9.–10. september næstkomandi í Varmalandi.

Viðburðurinn er ætlaður starfsfólki frístunda- og félagsmiðstöðva, ungmennahúsa og öðru fagfólki sem starfar með börnum og ungmennum. Starfsdagarnir eru mikilvægur vettvangur til að hefja nýtt starfsár, sækja sér fræðslu, fá upplýsingar fyrir komandi vetur og eiga faglegt samtal við samstarfsfólk víðs vegar að af landinu.

Undanfarin ár hefur þátttaka á starfsdögunum verið mjög góð og hafa færri komist að en vildu. Miklar umræður hafa átt sér stað, bæði innan stjórnar Samfés og á vettvangi, um hvernig hægt sé að tryggja að sem flestar félagsmiðstöðvar og ungmennahús geti nýtt sér þá þekkingu og fræðslu sem boðið er upp á.

Af þeim sökum verður forgangur í gistingu á hótelinu fyrir stjórnendur frístunda- og félagsmiðstöðva, aðstoðarforstöðumenn og starfsfólk í 100% starfi. Þegar þeim hópi hefur verið úthlutað gistiplássi verða laus pláss auglýst fyrir starfsfólk í hlutastarfi. Einnig er hægt að skoða aðra gistimöguleika eða sumarbústaði í nágrenni Varmalands.

Skráning hefst 17. ágúst og lýkur 31. ágúst.

Nánari upplýsingar um dagskrá, verð og fyrirkomulag verða birtar þegar nær dregur.

Previous
Previous
May 8

SamFestingurinn 2026

Next
Next
September 25

Hinsegin Landsmót